Jóhannes Óli Sveinsson, forseti Ungs jafnaðarfólks, um sveitarstjórnarkosningar 2026, segir að úrslit sveitarstjórnarkosninganna valdi sér vonbrigðum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu.
„Við erum samt að bæta við okkur fulltrúum eins og í Kópavogi. Ég er að norðan. Mínir tveir heimastaðir eru Norðurþing og Akureyri þar sem við erum að bæta við okkur manni, úr einum í tvo á báðum stöðum. Um landið allt erum við að bæta við okkur fólki, sem ég er mjög ánægður með. Samfylkingin hefur lengi verið mjög sterk í Reykjavík en ekki sterk úti á landsbyggð. Nú er það kannski smá öfugt.“