Í hugleiðingum veðurfræðings segir að lægð sem sé stödd við Vestmannaeyjar þokist hægt og rólega til norðausturs í dag. Búast megi við rigningu með köflum í flestum landshlutum, en þurrt að kalla á Vestfjörðum. Á morgun er búist við suðlægri átt og skúrum, en þurrt að kalla og hlýjast austantil.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á morgun:
Suðvestan 5-13 m/s og rigning með köflum eða skúrir, en lengst af þurrt og bjart austast á landinu. Hiti 10 til 16 stig.
Á föstudag:
Suðvestan 3-10 og víða skúrir en úrkomuminna suðaustantil. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á austanverðu landinu.
Á laugardag:
Suðaustan 3-10 og skýjað. Rigning með köflum, en þurrt að kalla norðaustantil. Dálítil væta á víð og dreif, en úrkomulítið austanlands. Hiti 10 til 15 stig.
Á sunnudag:
Austlæg átt og rigning öðru hverju í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið.
Á mánudag:
Vestanátt og skúrir. Hiti 12 til 17 stig.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt. Skúrir eða rigning sunnanlands, en þurrt að mestu norðan heiða. Hiti svipaður.