Reykjavíkurborg og Vegargerðin vinna saman að uppfærslunni en greint er frá þessu á vef Reykjavíkurborgar. Þar segir að slökkt verði á umferðarljósunum í um fjórar klukkustundir hvorn daginn. Meðan á framkvæmdunum standi megi gera ráð fyrir mögulegum töfum á svæðinu. Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og fylgja leiðbeiningum á staðnum.
Markmiðið sé að bæta umferðaröryggi
Uppfærsla ljósastýringar sé liður í áframhaldandi vinnu við að bæta umferðaröryggi á götum borgarinnar.
„Við þökkum fyrir sýndan skilning og þolinmæði á meðan unnið er að þessum nauðsynlegu endurbótum til að bæta umferðaröryggi og umferðarflæði,“ segir á vef Reykjavíkurborgar.