„Menningarnótt gekk vel í heildina. Það náttúrlega var heilmikið af fólki, þrátt fyrir rok og rigningu. Það sem við erum mjög ánægð með er hvað það var góð stemning og það var góður andi yfir öllu,“ segir Guðrún Halla Jónsdóttir forvarnarfulltrúi Reykjavíkurborgar.
„Hvað varðar ungmenni að þá var svolítil áfengisneysla sem vill stundum fylgja svona hátíðum.“
Framkvæmdastjóri Samfés sagði við fréttastofu í gær að tilfinning starfsfólks félagsmiðstöðva væri sú að unglingadrykkja hefði aukist. Guðrún tekur undir það.
Lögregla helti miklu niður af áfengi
Hún segir starf lögreglu, sem hófst um hádegisbil á Menningarnótt, hafa skipt miklu máli. Lögreglan hafði afskipti af um fjörutíu unglingum vegna áfengisdrykkju.
„Lögregla hellti niður mikið af áfengi sem hefur mikið að segja. Þá verður ekki eins mikil ölvun þó að það sé áfengisneysla. Við fundum mjög mikið fyrir þvi. Krakkarnir voru ekki eins ölvaðir og eins illa á sig komin eins og við höfum stundum séð. Samt sem áður þá viljum við náttúrlega sjá það þannig að það sé engin ölvun. En þetta er samt betra en hefur verið í nokkur ár.“
Góð samskipti barna og foreldra mikilvæg
Guðrún segir að leggja þurfi aukna áherslu á þá verndandi þætti sem sporna gegn áhættuhegðun barna og unglinga. Foreldrar fengu bréf frá borginni í vor og aftur í síðustu viku þar sem bent er á þessa þætti.
„Ég held að við þurfum að vera duglegri að koma því áleiðis til foreldra og til unglinganna sjálfra og reyna að efla betur þessa verndandi þætti, svo sem að vera í góðum samskiptum við foreldra sína, vera í skipulögðu tómstundastarfi, virða útivistartíma og lifa heilsusamlegu lífi.“