Veiðimennirnir snjöllu voru á aldrinum sex til tólf ára og fengu þrír verðlaun fyrir særsta fiskinn sem kom á land, þann furðulegasta og verðlaun fyrir mesta aflann.
Þeir veiðimenn sem fréttastofa ræddi við voru sammála um skemmtanagildi dorgveiðinnar þrátt fyrir dræman afla.
„Ég veiddi marglyttu en ég sleppti henni,“ sagði einn ungur veiðimaður við fréttastofu, en veiði þeirra félaga hafði að öðru leyti ekki verið upp á marga fiska.
„Mig langaði ekki að vera stungin af henni.“