Stjórnvöld í Sádi-Arabíu, Pakistan og Tyrklandi hafa skrifað undir varnarsamning þar sem segir að árás á eitt ríkjanna jafngildi árás á þau öll.
Krónprins Sádi-Arabíu, Tyrklandsforseti og forsætisráðherra Pakistans undirrituðu samninginn í borginni Jeddah við Rauðahaf í dag.
Samningnum er ætlað að efla sameiginlegar varnir ríkjanna og fælingarmátt þeirra. Hann kveður á um aukið varnarsamsamstarf, meðal annars sameiginlegar heræfingar og þjálfun, upplýsingamiðlun og samvinnu á sviði tækni. Í honum segir að árás á eitt ríkjanna samsvari árás á þau öll.
Átök Bandaríkjanna og Írans talin hafa flýtt fyrir
Með samkomulaginu sameina krafta sína olíuveldið Sádi-Arabía, kjarnorkuveldið Pakistan og Tyrkland, sem er með næstfjölmennasta her Atlantshafsbandalagsins.
Sádi-Arabía og Pakistan gerðu tvíhliða varnarsamning í fyrra og Tyrkland bætist í hópinn með nýja samningnum.
Átök Írans og Bandaríkjanna hafa aukið spennu og öryggisógnir í Mið-Austurlöndum og víðar. Sádi-Arabía hefur ítrekað verið skotmark Írana og bandamanna þeirra í Jemen og Írak. Átökin hafa einnig raskað siglingum um Hormússund og Rauðahaf.
Sádi-Arabar hafa að undanförnu leitast við að fjölga bandamönnum sínum á sviði öryggis- og varnarmála, sér í lagi eftir að stríðið braust út fyrr á þessu ári.
AFP-fréttaveitan hefur eftir sádiarabískum heimildarmanni tengdum her og ríkisstjórn að stríð Bandaríkjanna gegn Íran hafi orðið til þess að flýta samkomulaginu, sem hafi verið í undirbúningi mánuðum saman.