Fjármálakerfið á Íslandi er talið sterkt og vel í stakk búið til að takast á við áföll. Skuldir heimila og fyrirtækja eru almennt hóflegar og vanskil lítil, segir í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar.
Síðasta áratug hafi verið byggt upp kerfi sem þolir áföll og óvissu
Bankarnir geta staðið af sér verulegt áfall. Aftur á móti geta áframhaldandi verðbólga, háir vextir og óvissa í alþjóðahagkerfinu reynt á kerfið, að mati nefndarinnar. Enginn veit hversu lengi óvissuástandið varir.
Hvað þolir fjármálakerfið á Íslandi svona ástand til langs tíma?
„Ég held að fjármálakerfið á Íslandi þoli bara mjög mikið. Við vorum að gera álagspróf sem á að meta hvað bankarnir geta staðið af sér mikil áföll. Síðustu 10-15 árin höfum við verið að byggja upp fjármálakerfi sem þolir áföll og óvissu og við teljum að það hafi heppnast. Við álítum að þetta kerfi muni bara þola ansi mikið,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Á sama tíma hefur húsnæðismarkaðurinn kólnað og merki eru um aukna áhættu í byggingargeiranum. Stærri íbúðir og nýjar seljast síður. Ásgeir segir bankana og verktaka þó ráða við stöðuna eins og stendur.
Fyrstu fasteignakaupendur viti kannski ekki af möguleika á undanþágu
Seðlabankinn hafi þegar beitt sér með því að lækka kröfur á fyrstu kaupendur og með því að gefa bönkunum meira svigrúm fyrir undanþágur, til að mynda fyrir fólk sem getur sýnt fram á að hafa ráðið við háa leigu.
„En við höfum ekki séð að þessar undanþágur hafi verið nýttar og kannski þurfa fleiri fasteignakaupendur bara að vita af þessu. Að þú getur, jafnvel þó þú fáir höfnun í greiðslumati, farið og talað við bankann þinn og fengið undanþágu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum,“ segir Ásgeir.
Hægt að nota greiðslukort í netleysi frá 1. júlí
Þá voru kynntar aðgerðir til að bregðast við þeirri vaxandi ógn sem fylgir tæknivæðingu og óróa á alþjóðavettvangi: Kortagreiðslur í netleysi. Í árslok verður hægt að nota snertilausar greiðslulausnir, eins og úr og síma, þótt netið liggi niðri. Frá og með 1. júlí getur fólk notað greiðslukort í verslunum í netleysi.
„Við munum kynna þetta Fólk muni geta notað plastkortin sem vonandi á einhvers staðar með pinúmerinu jafnvel þótt netið liggi niðri en það sem þarf að gera er með kort sem þegar hafa verið gefin út þá þarf að fara í verslanir sem selja nauðsynjavörur sem matvöruverslanir eða lyfjabúðir og virkja kortin eftir mitt ár það er gert með því að greiða fyrir eitthvað í slíkri verslun og nota pin-númerið.