Þá er ekki heldur vitað hve margir gíslarnir eru inni í bankanum, samkvæmt frétt Bild.
Lögreglan notast við þyrlur til að vakta bankanna og bæinn og sérsveitarmenn eru sagðir fylgjast með öllum útgöngum úr bankanum.
Íbúar hafa varið hvattir til að halda sig innandyra en lögreglan segist hafa stjórn á aðstæðum og að ógnin gagnvart bæjarbúum sé takmörkuð. Sinzig er um sautján þúsund manna bær nærri Bonn.
DW segir lögregluna annars verjast fregna af stöðunni, þar sem „einhverjir“, væntanleg ræningjarnir, gætu verið að fylgjast með fréttum.
„Við verðum að bíða og sjá hvernig aðstæður þróast,“ hefur miðillinn eftir talsmanni lögreglunnar.
Lögreglan segir að það gæti tekið langan tíma að binda enda á gíslatökuna. Viðbragðsaðilar eru samkvæmt Bild að koma upp að reisa aðstöðu þar sem hægt yrði að hlúa að særðum eða slösuðum. Lögreglan segir það eingöngu varúðarráðstöfun.
Fréttin hefur verið uppfærð.