Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar barðist gegn áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið í gegnum samtökin Áfram Ísland sem hún stofnaði ásamt þeim Halldóri Benjamín Þorbergssyni, Stefáni Pálssyni, Láru Herborg Ólafsdóttur og Birni Zoéga. Fyrir vikið hefur Sólveig Anna mátt sitja undir því síðustu vikur og mánuði að hún sé gengin auðvaldinu á band. Umræðan hefur verið hörð í hennar garð og hún kölluð ýmsum uppnefnum. Hún mætti í hlaðvarpið Komið Gott til að ræða málið. Vék Sólveig þar tali sínu meðal annars að bræðrunum Degi B. og Gauta B.
Ummæli Sólveigar vekja hörð viðbrögð og ráðherra segist orðlaus - „Hvað er að frétta?“