Búið er að laga bilun í umferðarljósum á og við Breiðholtsbrú.
Umferðarljósin á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar og Nýbýlavegar, Dalvegar og Skemmuvegar urðu óvirk í morgun vegna bilunar.
Þetta olli nokkrum vandræðum og samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni urðu miklar tafir á umferð.
Nýbýlavegi var lokað í báðar áttir yfir brúna og beygjuakreinum af henni. Búið er að opna fyrir umferð á öllum þessum leiðum.