Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar óttast að stefnt sé að því að færa endurhæfingarstarf Kristnesspítala annað, en telur að ekki verði hægt að byggja upp álíka aðstöðu annars staðar gædda sömu kostum. Nauðsynlegt sé að taka ákvörðun um framtíðina hið fyrsta. Sjúkrahúsið á Akureyri rekur þar endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild.
Eftir að mygla greindist í húsnæði spítalans var ráðist í frekari greiningar. Húsnæði starfsmanna hefur nú verið metið óheilnæmt. Ríkið á um 20 íbúðir á svæðinu og búið er í 11 þeirra. Starfsmönnum hefur verið ráðlagt að flytja út sem fyrst.
Á fundi sínum á fimmtudag ítrekaði sveitarstjórn afstöðu sína að hún leggist gegn því að starfsemin á Kristnesi verði lögð af. Ef slík ákvörðun verði tekin sé hins vegar brýnt að hún liggi fyrir fljótt og örugglega. Það sé nauðsynlegt svo hægt verði að hefja vinnu við að finna húsinu og svæðinu nýtt hlutverk.
„Málið hefur þróast á undanförnum misserum og umfang þess aukist með nýjum upplýsingum um afar slæmt ástand spítalans og íbúðarhúsnæðis á svæðinu, sem ekki lá fyrir í upphafi. Ljóst er að þörf fyrir viðbrögð eru nú bæði umfangsmeiri, viðkvæmari og brýnni en upphaflega lá fyrir,“ segir í tilkynningu sveitarstjórnar.