Útlit er fyrir stórsigur umbótaflokks Nigel Farage, Reform, í sveitarstjórnarkosningunum á Englandi sem fram fóru í gær. Flokkurinn hefur nú þegar tryggt sér 330 sæti í sveitarstjórnum samkvæmt breska ríkisútvarpinu BBC. Það stefnir í mikið fylgistap hjá Verkamannaflokknum. Flokkurinn er búinn að tapa meirihluta í sjö sveitarstjórnum.
Ekki er búið að telja öll atkvæði í sveitarstjórnarkosningunum en talning atkvæða gæti dregist fram á laugardag. Þá er von á niðurstöðum þingkosninga í Skotlandi og Wales á hádegi.
Kosið var um sex borgarstjórastöður á Englandi og fimm þúsund fulltrúar verða kjörnir í sveitarstjórnir. Því er spáð að Verkamannaflokkurinn lendi í þriðja sæti í þingkosningunum í Wales en flokkurinn hefur stjórnað þar í 27 ár.