Fossinn er einn þekktasti foss landsins og er hluti af svokölluðum Gullna hring.
Það er alltaf gaman að koma á svæðið við Gullfoss og skoða fossinn og nágrenni hans. Stöðug umferð ferðamanna er á staðnum alla daga, þó mest um helgar. Flestir ganga að útsýnispallinum neðst við fossinn og njóta þess að horfa þaðan og taka myndir. Um 1,5 milljónir ferðamanna heimsækja fossinn árlega.
Sigríður Tómasdóttir í Brattholti er sú kona sem barðist gegn því á sínum tíma að fossinn yrði virkjaður og vildi alltaf að fossinn fengi að flæða fram af hamrinum og hún náði því í gegn en vegna þessarar baráttu Sigríðar er hún oft kölluð fyrsti íslenski náttúruverndarsinninn. Árið 1979 var Gullfoss og nágrenni hans friðlýst sem náttúruvætti og er fossinn nú verndaður til framtíðar.
Á planinu fyrir ofan fossinn er stór og mikil verslunarmiðstöð og veitingastaður þar sem alltaf er meira nóg að gera.
„Það hefur gengið frekar vel, nóg að gera, geggjað veður nánast búið að vera í allt sumar, þannig að það er bara góður straumur. Ferðamennirnir eru aðallega að koma hingað að sjá Gullfoss, labba um og sjá þetta glæsilega umhverfi, fjöllin hér allt í kring og svo er Geysir náttúrulega bara í fimm mínútna fjarlægð,” segir Ásdís Lára Svavarsdóttir, starfsmaður á Gullfossi verslunar- og veitingamiðstöð.
Og fossinn er alltaf jafn glæsilegur?
„Já, alltaf í sama hvaða veðri sem er, bara krafturinn í honum, það er alveg magnað,” segir Ásdís.
Ásdís segir ferðamennina sem skoða fossinn agndofa yfir fegurð hans, hún heyri það oft á dag frá þeim.
„Já, ég held að það séu allir frekar agndofa yfir þessari fegurð þannig að það kemur inn og er alveg með stjörnur í augunum,” segir Ásdís.
En hvernig líst starfsfólki á það sem eftir er sumarsins og haustsins hvað varðar Gullfoss og ferðamenn?
„Bara vel, það yfirleitt dembast niður um haustið og um veturinn. Það er mest að gera hérna á sumrin, þannig að við hvetjum Íslendinga til að koma til okkar og kíkja á okkur á haustin og veturna, þá er svona minna að gera og þægileg stemning,” segir Ásdís kát og hress.