Um 1300 ólögráða börn fá að dvelja á Spáni – eftir innrásina í Ceuta

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Um 1300 ólögráða börn fá að dvelja á Spáni – eftir innrásina í Ceuta
Bráða ástandinu vegna innflytjendakreppunnar í spænska sjálfstjórnarsvæðinu Ceuta er lokið en enn á eftir að vinna úr atburðnum. Það fara ekki allir til baka.
Í innrásarher ólöglegra innflytjenda, sem fór til Ceuta, voru um 1300 hundruð ólögráða börn. Þau geta haldið áfram norður á bóginn í átt að Danmörku og öðrum Evróðulöndum. Þegar umrædd börn hafa fengið hæli hefst fjölskyldusameining. Það geta fylgt hverjum einstaklingi frá einum – 14 manns ef ekki fleiri.
Hafnarfjarðarbær barðist við íslenska ríkið vegna fjöskyldusameiningar eins hælisleitenda sem fékk hæli hér á landi og settist að í Hafnarfirði. Honum fylgdu átta börn í fjölskyldusameiningunni. Íslendingar töldu sig veita einum hæli en fékk tug manna.
Margt kemur í ljós
Á sama tíma koma fram sífellt fleiri upplýsingar um það sem raunverulega gerðist. Spænska ríkisstjórnin hafði í raun verið vöruð við því að mikill straumur innflytjenda væri væri á leiðinni. En Spánn hlustaði ekki. Þetta skrifar danska dagblaðið Berlingske.
Þegar innrás ólöglegra innflytjenda hófst síðastliðinn fimmtudag gátu þeir streymt nánast hindrunarlaust yfir landamærin.
Landamæraverðir í Marokkó höfðu lítil afskipti af þeim, einnig voru fáir og aðgerðalitlir landamæraverðir í spænska hluta Ceuta.
Ljóst er að Spánverjar höfnuðu aðstoð frá evrópsku landamærastofnuninni Frontex.
Niðurstaðan varð sú, að um 72.000 ólöglegir innflytjendur streymdu inn í spænska sjálfstjórnarsvæðið, þar sem um 83.000 manns búa.
Allt var í ringulreið. Ekki var nægur matur, vatn né gistiaðstaða fyrir þann mikla fjölda innflytjenda. Flestir þeirra héldu til síns heima eftir að vera vísað frá Spáni.
Innflytjendum frá Afríku sunnan Sahara var þó leyft að vera áfram og sækja um hæli. Þeir gætu því síðar komið til annarra Evrópulanda.
Ólögráða einstaklingar
Auk þess var miklum fjölda fylgdarlausra ólögráða leyft að vera áfram. Með fylgdarlausum ólögráða er átt við einstaklinga undir 18 ára aldri. Stór hluti þeirra sem kallaðir eru „ólögráða“ eru þó að sögn stórir drengir og ungir menn sem hafa lítið sameiginlegt með börnum.
Alls hafa 1.342 ólögráða innflytjendur verið skráðir hingað til, að því er spænska dagblaðið El País og Reuters greina frá.
Samkvæmt Reuters sofa margir hinna ólögráðu í bráðabirgðahúsnæði eða á götunni. Móttökustöðvar svæðisins eru yfirfullar. Spænski ráðherrann Sira Rego segir að Spánn setji stúlkur og drengi yngri en 13 ára í forgang. Jafnframt segir hún ljóst, að spænska ríkisstjórnin vonist til þess að geta flutt hina ólögráðu innflytjendur til spænska meginlandsins „innan nokkurra vikna.“
Eftir það geta þeir ferðast frjálslega um Evrópu.
Þeir ólöglegu verða löglegir
Við þetta bætast þeir fjölmörgu ólöglegu innflytjendur sem geta átt von á að fá löglega dvalarheimild á Spáni. Þegar frestur rann út 30. júní 2026, fyrir umfangsmikla lögleiðingu Spánar á stöðu innflytjenda án dvalarleyfis, höfðu yfirvöld alls fengið 1.174.978 umsóknir – meira en tvöfalt fleiri en ríkisstjórnin hafði gert ráð fyrir í upphafi.
Þetta gæti orðið gjörsamlega óviðráðanlegt fyrir aðra hluta Evrópu.
Ítalía hefur komið á sérstakri landamæraeftirlitsskipan gagnvart Spáni og á laugardag kom Spánn á sams konar eftirliti gagnvart Ítalíu.
ESB á að leggja fram áætlun innan skamms um hvernig sambandið hyggst bregðast við.