Íslendings á þrítugsaldri er saknað í borginni Pattaya í austurhluta Taílands. Ekkert hefur spurst til hans í tólf daga.
Fjölskylda Sindra Freys Jenssonar lýsir eftir honum í Facebook-hópnum Pattaya News. Systir hans birti færsluna og biður fólk að hafa augun opin og gefa sig fram hafi það einhverjar ábendingar.
Náinn aðstandandi Sindra Freys í samtali við fréttastofu að hann hafi verið í fríi í Pattaya ásamt tvíburabróður sínum. Þeir séu báðir í óreglu og hafi orðið viðskila 23. maí. Ekkert hafi spurst til Sindra síðan og nánast eins og jörðin hafi gleypt hann, engin virkni hafi verið í síma hans né bankareikningi síðan.
Aðstandandinn segir að lögreglunni hér á landi sé kunnugt um hvarf Sindra Freys. Utanríkisráðuneytið staðfestir að málið sé á borði borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins.
Fréttin hefur verið uppfærð með svörum utanríkisráðuneytisins.