Tveir starfsmenn sendinefndar Sameinuðu þjóðanna í Afganistan voru handteknir af leyniþjónustu stjórnvalda í Herat í Vestur-Afganistan á sunnudaginn. Sameinuðu þjóðirnar krefjast þess að sérstök staða starfsmanna þeirra verði virt.
Farhan Haq, talsmaður Antonios Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna segir að ekki sé vitað hverjar ásakanirnar eru og engum hafi enn verið leyft að hitta þá.
Hann skorar á stjórnvöld í Afganistan að virða forréttindi og friðhelgi starfsfólks og embættismanna Sameinuðu þjóðanna. Margar stofnanir þeirra starfa víðs vegar um Afganistan svo sem á sviði heilbrigðismála og mannúðaraðstoðar.
Siðferðislögregla handtók hjálparstarfsmenn
Laugardaginn 15. ágúst verða fimm ár frá því að talibanar komust til valda í Afganistan. Starfsemi Sameinuðu þjóðanna og annarra mannúðarsamtaka og hjálparstofnana í landinu er ýmsum takmörkunum háð.
Afgönskum konum er meinaður aðgangur að starfsstöðvum Sameinuðu þjóðanna, þar með talið kvenkyns starfsfólki og konum er bannað að koma á fjölda annarra svæða.
Siðferðislögregla talibana handtók í júní um 20 hjálparstarfsmenn í Herat-héraði nærri landamærunum við Íran því skegg þeirra var ekki nógu sítt. Þar á meðal starfsmenn stofnana sem eru í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar. Mönnunum var síðar sleppt.
Siðferðislögreglan handtók einnig tugi kvenna í júní fyrir að brjóta reglur um klæðaburð og vera ekki í chador eða búrku, flíkum sem konum ber að klæðast yfir föt sín og hylja þær frá toppi til táa.
Meðal kvenna í hópi hinna handteknu var starfsmaður á spítala Lækna án landamæra og samtökin hafa mótmælt handtökunni harðlega. Mótmæli brutust út vegna handtöku kvennanna. Sameinuðu þjóðirnar segja að mótmælendunum hafi verið mætt af hörku og að minnsta kosti tveir verið drepnir og tuttugu særst í mótmælunum.