Tveir voru drepnir og nokkrir særðust eftir loftárás Rússlandshers í Kherson-héraði í Úkraínu. Þeir sem létust og særðust voru sprengjusérfræðingar sem tilheyrðu úkraínskum samtökum sem vinna með norsku mannúðar- og hjálparsamtökunum Norsk Folkehjelp. NRK greinir frá.
Árásin var gerð rétt hjá borginni Kryvyi Rih í miðri Úkraínu.
Yfir 450 vinna hjá Norsk Folkehjelp í Úkraínu. Raymond Johansen segir samtökin vera að rannsaka hvernig sprengjusérfræðingarnir létust og særðust. Hingað til bendi ekkert til þess að drónaárás hafi verið gerð. Hann segir sprengjusérfræðinga alla jafna vera í vel merktum fötum sem sýni skýrt að þeir vinni fyrir Norsk Folkehjelp.
„Hugur okkar er fyrst og fremst hjá fjölskyldum fórnarlamba þessa sorglega atburðar.“
Samtökin hlúi núna að þeim sem særðust og öðrum starfsmönnum í Úkraínu. „Þessi árás sýnir hversu hættulegt það er að vera starfsmaður hjálpar- og mannúðarsamtaka í stríði og á átakasvæðum.“
Åsmund Aukrust, ráðherra þróunarhjálpar í Noregi, fordæmir árásina. „Árásir á hjálparsamtök sem vinna við að vernda almenna borgara og bjarga mannslífum eru algjörlega óásættanlegar og skýrt brot á grundvallarreglum alþjóðalaga.“
Hann segir Norsk Folkehjelp vinna áhættusama og umfangsmikla vinnu að því að hreinsa jarðsprengjur og veita neyðarhjálp í Úkraínu.
„Þetta er enn eitt dæmið um algjört virðingarleysi Rússa fyrir mannúðarstarfi þar sem eini tilgangurinn er að vernda líf almennra borgara.“
Síðasta haust var gerð árás á danska sprengjusérfræðinga frá Danska flóttamannaráðinu en hún var í Chernihiv í norðurhluta Úkraínu. Tveir létust og þrír særðust í þeirri árás.