Delcy Rodríguez, starfandi forseti Venesúela, hefur staðfest að 32 hafi látist og rúmlega sjö hundruð manns slasast.
Á vef Bandarísku jarðvísindastofnunarinnar USGS kemur þó fram að talið sé að manntjónið kunni í raun að vera miklu meira enda séu enn upplýsingar að berast. Segir að 44 prósent líkur séu á að rúmlega 10 þúsund manns hafi látist í skjálftunum og eru 30 prósent líkur á að talan sé yfir 100 þúsund.
Björgunarlið leita nú í rústum bygginga í höfuðborginni og í héraðinu La Guaira sem talið er að hafi orðið verst úti. Skjálftarnir riðu yfir rétt rúmlega 18 að staðartíma eða 22 í gærkvöldi að íslenskum tíma.
Yfirvöld í Venesúela hafa þegar lýst yfir neyðarástandi í landinu og tilkynningar hafa borist um mikla eyðileggingu. Forsetinn Rodríguez segist enn ekki hafa fengið upplýsingar um umfang eyðileggingarinnar og manntjón í La Guaira.
Tenemos un objetivo central y esencial: salvar vidas en unión nacional, unidos vamos a superar esta tragedia. pic.twitter.com/OXlmrKZo9m
— Delcy Rodríguez (@delcyrodriguezv) June 25, 2026
Skjálftarnir í nótt eru þeir stærstu í landinu í rúma öld, en skjálftinn fannst einnig í Bogota, höfuðborg Kólumbíu.
Yfirvöld í nágrannaríkjum hafa boðið fram aðstoð vegna skjálftanna.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði sömuleiðis í nótt að bandarísk stjórnvöld væru reiðubúin að aðstoða Venesúela og hefur hann beint þeim orðum til bandarískra stofnana að hefja slíkan undirbúning.