Erlend hjón sem dvöldu hér á landi í tólf daga fyrir skemmstu, þar sem þau fóru meðal annars hringinn í kringum landið, sátu uppi með svimandi reikning eftir leiðindaóhapp á ferðalagi sínu.Maðurinn, Frank að nafni, lýsir reynslu sinni í Facebook-hópnum Iceland – Tips for Travelers.Frank segir að einn daginn hafi vindurinn gripið farþegahurð bílaleigubílsins og rifið hana upp með þeim afleiðingum að löm brotnaði. Hann lýsir því næst hvernig honum tókst að gera bráðabirgðaviðgerð á hurðinni þannig að hægt var að loka henni á ný.
Erlend hjón lentu illa í því á Íslandi: Ferðalagið endaði með 400 þúsund króna reikningi