Tveir sakborningar af þremur í Höfðatorgsmálinu svokallaða neituðu sök við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Þriðji sakborningurinn er staddur í Jórdaníu og ekki hefur náðst í hann.
Mennirnir þrír eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps í þremur hlutum: einn fyrir að hafa ekið á manninn, annar fyrir að hafa barið hann með áhaldi og sá þriðji fyrir að hafa stungið hann í rasskinnina. Maðurinn sem varð fyrir árásinni hlaut lífshættulega áverka.
Sá sem ekki var viðstaddur þingfestinguna er sá sem er gefið að sök að hafa barið manninn ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi, eftir að annar sakborningur hafði ekið á brotaþola. Verjandi hans sagði við þingsetningu að hann ætlaði að reyna að ná tali af honum og fá hjá honum umboð.
Saksóknari krefst refsingar yfir mönnunum og maðurinn sem varð fyrir árásinni krefst tíu milljóna króna í miskabætur í einkaréttarkröfu. Sakborningarnir tveir sem viðstaddir voru höfnuðu bótakröfunni við þingsetningu.
Ákveðið var að fyrirtaka yrði í málinu 8. júlí.