Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, svarar skáldinu Hannesi Péturssyni í langri og ítarlegri grein í Morgunblaðinu í dag. Líkt og fjallað var um fyrr í vikunni skrifaði skáldið langa og ítarlega grein þar sem farið er háðsorðum um þá sem vilja segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi þar sem spurt verður hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Notar skáldið orðin „Eldhaf“ og „Brennandi hús“, sem hann kallar „ruslyrði“.
Hannes Hólmsteinn svarar Hannesi skáldi: „Fullvissan menguð heift“