Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, segir Samtök evrópskra íhaldsmanna og umbótasinna, ECR, vera með fallegan og traustan boðskap, blaðamenn sem hafi vitnað í myndbönd samtakanna séu að stunda pólitískan aktívisma. Miðflokkurinn er orðinn hluti af þessum samtökum. Á vef samtakanna segir að þau sameini stjórnmálaflokka sem leggja áherslu á einstaklingsfrelsi, þjóðlegt fullveldi, þingræði, réttarríki, einkaeignarrétt, lága skatta, traustan gjaldmiðil, frjáls viðskipti, opna samkeppni og valddreifingu.
Snorri sakar blaðamenn um pólitískan aktívisma: „Samtök með traustan og fallegan boðskap“