Greta hefur tvisvar verið fulltrúi Íslendinga í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, árin 2012 og 2016. Þá hefur Greta hefur starfað sem fiðluleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess hún hefur starfað með Sinfonia Nord.
Greta gaf út plötuna In the Silence árið 2012 og gaf á árunum 2015 til 2018 út nokkrar smáskífur.
Greta og Elvar kynntust þegar hann þjálfaði hana í líkamsræktarþjálfuninni Boot Camp. Þau trúlofuðu sig síðan í janúar árið 2018 og gengu í hjónaband þann 29. apríl árið 2023 í Mosfellskirkju.