Uppgangur var í tækni- og hugverkaiðnaði í vor. Tekjur af starfseminni námu tæplega 120 milljörðum króna í mars og apríl og höfðu þá aukist um tólf prósent milli ára. Verulegur vöxtur var í upplýsingatæknigreinum, sérstaklega í tengslum við rekstur gagnavera. Þar hátt í þrefaldaðist veltan.
Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar um veltu helstu atvinnugreina. Velta jókst umfram verðbólgu í um helmingi atvinnugreina.
Velta sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtækja jókst um 27 prósent. Aðra sögu var þó að segja af ferðaþjónustunni þar sem veltan dróst saman um sjö prósent.