Lögreglan rannsakaði glæp í starfsmannaaðstöðu á bókasafni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmis horn að líta í nótt og í gærkvöldi, en meðal verkefna voru þjófnaðir, umferðarbrot, heimilisofbeldi og fíkniefnamál.
Tilkynnt var tvívegis um vasaþjófnað í miðborg Reykjavíkur. Í báðum tilvikum var meðal annars vegabréfum og öðrum persónulegum munum stolið.
Einnig barst tilkynning um eld í bifreið. Tveir bílar skemmdust mikið í eldsvoðanum og voru báðir fluttir af vettvangi með dráttarbifreið.
Lögregla og sjúkraflutningamenn voru kallaðir að slysi þar sem einstaklingur féll á rafhjóli. Talið var að viðkomandi hefði mögulega hlotið beinbrot.
Þá var lögreglan kölluð til vegna þjófnaðar í starfsmannaaðstöðu á ónefndu bókasafn og að sögn lögreglan liggja vísbendingar fyrir.
Einn einstaklingur var vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar á heimilisofbeldismáli. Þá hafði lögregla einnig afskipti af manni sem var grunaður um vörslu fíkniefna.
Nokkur umferðarbrot komu einnig til kasta lögreglu. Tveir ökumenn voru stöðvaðir fyrir akstur án gildra ökuréttinda og annar þeirra var jafnframt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá var einn ökumaður stöðvaður á óskoðaðri bifreið og skráningarnúmer hennar fjarlægð.
Í öðru máli reyndi réttindalaus ökumaður að villa á sér heimildir með því að gefa upp rangt nafn og kennitölu við lögreglu.
Að lokum var ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Við nánari skoðun kom í ljós að bifreiðin var einnig búin röngum skráningarnúmerum.