Franskur ferðamaður sem var sektaður fyrir stórfelldan utanvegaakstur um helgina hefur birt kort af hluta ferðar sinnar.
Frakkinn heitir Luc Haudeville og var ásamt samlöndum sínum sektaður um hundruð þúsunda um helgina fyrir að aka utan vegar á tveimur jeppum og spæna upp landslag á lokuðu svæði við Kötlujökul, Einhyrning og í Hvanngili.
Haudeville birti kortið á sunnudaginn á síðunni wikiloc undir titlinum „Ísland júní 2026 annar hluti: berg og jöklar suðurstrandarinnar“. Það virðist vera að búið sé að fjarlægja kortið af síðunni.
Á síðunni wikiloc geta ferðalangar um allan heim uppgötvað og deilt hver með öðrum skemmtilegum göngu- og hjólaleiðum og spennandi leiðum sem hægt er að fara á torfærubíl.
Kortið sem Haudeville birti sýnir ferð sem hann keyrði á Suðurlandi, frá Höfn til Reykjavíkur. Á kortinu sést að Haudeville keyrði ítrekað utan vegar.
Algjört iðrunarleysi mest sláandi
Tvær athugasemdir eru undir færslunni sem gagnrýna Haudeville.
„Það ætti enginn að fylgja þessari leið og Luc ætti ekki að vera stoltur af þessari leið og honum hefur verið refsað af lögreglu,“ segir í annarri athugasemdinni.
Í hinni segir: „Luc, hegðun þín á Íslandi var gjörsamlega óásættanleg. Þú varst handtekinn fyrir utanvegaakstur þrátt fyrir að allir viti að slíkt er stranglega bannað. Reglurnar eru settar til að vernda einstaka og afar viðkvæma náttúru en þú kaust að hunsa þær.
Það sem er þó mest sláandi er algjört iðrunarleysi þitt. Í stað þess að viðurkenna mistök þín virðist þú láta eins og þetta skipti engu máli. Þessi vanvirðing við Ísland, íbúa þess og umhverfi veldur mér miklum vonbrigðum.“
Haudeville birti líka kort sem sýnir ferð hans um Austfirði, undir yfirskriftinni „Ísland júní 2026 fyrsti hluti: Austfirðir“. Það er einnig búið að fjarlægja það kort af síðu wikiloc.
Fréttin var uppfærð þegar í ljós kom að búið var að fjarlægja kortin af vef wikiloc.