Þriggja ára gamalt barn fannst látið í bifreið í París, höfuðborg Frakklands. Þetta er þriðja barnið sem fundist hefur látið í bíl í landinu síðan hitabylgja hófst um helgina.
Heimildamaður fréttastofu AFP segir að foreldrar hafi fundið barnið látið í bíl utan við heimili þeirra. Yfirvöld hafa staðfest andlátið, sem varð í Saint-Gratien í útjaðri Parísarborgar.
Hitamet var slegið í Frakklandi, í annað sinn á þremur dögum, þegar meðalhiti á landsvísu náði 30 stigum. Hiti fór yfir 40 stig í París í gær.
Minnst 40 hafa drukknað í Frakklandi síðan hitabylgjan hófst.