Grunur liggur á að lögreglumaður sem greindist með berkla hafi smitast í fangageymslu þar sem berklasmitaður var vistaður. Fjölnir Sæmundsson, formaður stjórnar Landssambands lögreglumanna, tekur undir með lögreglumanninum sem segir ekki næga meðvitund um smitvarnir í starfstéttinni.
Fjölnir segir það fylgja starfi lögreglu að umgangast fólk sem sé smitað af alls kyns sjúkdómum.
„Lögreglumenn eru í þannig aðstæðum að þeir þurfa að umgangast alls konar fólk. Þeir þurfa að vera meðvitaðir um það. En oft eru þeir í aðstæðum þar sem þeir geta illa varið sig, því miður. Þess vegna þurfa þeir bara að fara í tékk bæði fyrir þessu og lifrarbólgu og fleiru.“
Loft mettað af vessum
Þegar vitað er fyrirfram að einstaklingur sem lögregla hefur afskipti af sé smitaður af smitsjúkdómi eru lögreglumenn látnir vita, að sögn Fjölnis. Eina forvörnin sem lögreglumenn hafi sé að nota hanska og grímu, það sé þó ekki alltaf möguleiki. Oft séu lögreglumenn í litlum rýmum með smituðum, eins og lögreglubílum eða fangageymslum.
„Þarna teljum við að viðkomandi lögreglumaður hafi smitast í fangageymslu þar sem loft í fangaklefa var orðið mettað af vessum úr berklasmituðum. Það var vitað að þar var berklasmitaður maður og þess vegna fór þessi lögreglumaður í test og lét tékka á þessu.“
Lögreglustjóri ræddi við sóttvarnalækni
Viðbrögð við berklasmitinu hefðu geta verið betri og sneggri, að sögn Fjölnis. Lögreglumenn hafi þó verið látnir vita og lögreglustjóri embættisins átt samtal við sóttvarnalækni. Hann segir viðbrögðin ekki hafa verið mikil opinberlega vegna þess að lögreglumaðurinn sem smitaðist hafi óskað eftir nafnleynd.
Lögreglumaðurinn greindist með sofandi berkla. Margir mánuðir liðu, að hans sögn, frá því hann smitaðist og þangað til hann greindist. Fjölnir segir lögreglumanninn hafa ákveðið að fara í próf þegar berklasmit komu upp á Landspítalanum.