Andri Freyr Sveinsson varðstjóri á Akureyri staðfesti fyrr í dag að tveir bílar hefðu verið stöðvaðir og skotvopn fundist í þeim báðum. Að öðru leyti hefur lögregla varist fregna.
Myndband barst fréttastofu fyrr í dag þar sem eina aðgerðina má sjá. Þar var ungur maður leiddur í lögreglubíl.
Á öðru myndbandinu sést hvernig vopnaður sérsveitarmaður krýpur við hlið minnst tveggja manna sem lágu á gangstéttinni með hendur með síðum á gatnamótum Þingvallagötu og Þórunnarstrætis, við sundlaugina.
Talsverður fjöldi lögreglumanna tók þátt í aðgerðinni af myndbandinu að dæma en nokkrir merktir lögreglubílar og nokkrir ómerktir til viðbótar höfðu lokað fyrir umferð um kafla Þingvallagötu.
Veistu meira um málið? Áttu myndefni eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Veistu meira um málið? Áttu myndefni eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.