James Hitchcock, sjötugur bandarískur karlmaður, var tekinn af lífi í Flórída í gær með banvænni sprautu eftir að hafa dvalið á dauðadeild ríkisfangelsisins í næstum hálfa öld, sakfelldur fyrir morð á stjúpfrænku sinni árið 1976.
Hitchcock hlaut dauðadóm árið eftir, hélt ávallt fram sakleysi sínu, og var einn þeirra fanga sem hvað lengst hafa beðið aftöku í Bandaríkjunum.
Á sama tíma var James Broadnax líflátinn með sama hætti í Texas fyrir morð á tveimur tónlistarframleiðendum árið 2008.
Hinstu orð hans voru yfirlýsing um sakleysi, samkvæmt upplýsingum fangelsisyfirvalda. Tíu fangar hafa verið líflátnir í Bandaríkjunum það sem af er ári, einn í Oklahoma, þrír í Texas og sex í Flórída.
Þar var framfylgt 19 af þeim 67 aftökum sem gerðar voru í landinu á síðasta ári, þær flestu síðan 2009. Dauðarefsing hefur verið aflögð í 23 ríkjum Bandaríkjanna og þrjú til viðbótar hafa tímabundið stöðvað aftökur.
Donald Trump forseti hefur krafist þess að dauðarefsingu verði beitt í auknum mæli fyrir alvarlega glæpi.
Síðasta aftakan á Íslandi var gerð 1830, þótt allmargir dauðadómar væru kveðnir upp eftir það og dauðarefsing var endanlega afnumin úr lögum 1928.
Þá voru tekin af lífi Agnes Magnúsdóttir vinnukona á Illugastöðum og Friðrik Sigurðsson bóndasonur frá Katadal. Þau voru dæmd til dauða fyrir morð á tveimur mönnum í mars 1828, þeim Nathan Ketilssyni bónda á Illugastöðum og Pétri Jónssyni frá Geitaskarði.