Ökumaður og þrír farþegar voru í bíl sem fór út af veginum í sunnanverðum Fáskrúðsfirði í gær og valt minnst tvisvar áður en hann stöðvaðist utanvegar, stutt fyrir ofan sjávarborðið.
Slysið varð rétt fyrir innan Eyri.
Tveir sluppu án teljandi meiðsla og fóru til skoðunar hjá lækni. Tveir voru sendir á sjúkrahúsið í Neskaupstað til aðhlynningar.
Tveir sjúkrabílar og tækjabíll voru sendir af stað þegar tilkynning barst um slysið en tækjabíllinn var afturkallaður þegar ljóst var að hans gerðist ekki þörf.