Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi í maí standa. Þetta varð ljóst þegar úrskurðarnefnd kosningamála vísaði frá tveimur kærum sem bárust vegna framkvæmdar kosninganna.
Efni annarrar kærunnar var að ekki hefði verið rétt staðið að talningu varamanna í sveitarstjórn. Úrskurðarnefndin vísaði því á bug.
Í hinni kærunni voru gerðar athugasemdir við auglýsingu á niðurstöðum kosninganna og að atkvæði væru ekki endurtalin, og þess krafist að úrskurðað yrði um hæfi eins kjörstjórnarfulltrúa hvers maki sóttist eftir endurkjöri í sveitarstjórn. Þeirri kæru var vísað frá þar sem kærufrestur var runninn út þegar kæran barst.