Enn annar maður í annarlegu ástandi var handtekinn í tengslum við rán í póstnúmerinu 108 og þá voru tveir handteknir fyrir þjófnað í verslun í póstnúmerinu 103.
Lögreglu bárust einnig tilkynningar um tvo aðra þjófnaði í verslunum og þjófnað á reiðhjóli. Reiðhjólaþjófurinn fannst og hjólinu var komið til skila.
Nokkrir voru stöðvaðir í umferðinni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn reyndist hafa nokkurt magn efna í fórum sínum og annar reyndist hafa verið sviptur ökuréttindunum.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.