Bandaríkjaforseti vill tvöfalda tolla á kanadísk ökutæki. Ekki sér fyrir endann á deilum Bandaríkjanna og Kanada um tollamál sem hafa færst í aukana að undanförnu.
„Frá og með 1. janúar 2027 verða tollar á alla bíla og vörubíla, stóra sem smáa, auk bílavarahluta og stáls, hækkaðir í 50 prósent,“ skrifaði Donald Trump forseti Bandaríkjanna á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag.
Bandaríkin leggja nú 25 prósenta toll á þann hluta kanadískra ökutækja sem ekki er framleiddur í Bandaríkjunum og 50 prósenta tollar eru almennt lagðir á innflutt stál.
Á föstudag slitnaði upp úr viðræðum ríkjanna tveggja um tollasamning. Hvorir sögðu hina hafa á síðustu stundu sett skilmála sem ekki var hægt að samþykkja.
Þetta leiddi til þess að nýir tollar Bandaríkjanna á kanadískar vörur, sem áttu að taka gildi á miðvikudaginn, tóku gildi um helgina.
„Við þurfum ekki á Kanada að halda“
Nýju tollarnir ná til um 5,5 prósenta kanadískra vara sem fluttar eru til Bandaríkjanna. Verðmæti þeirra er um 20 milljarðar bandaríkjadala, jafnvirði ríflega 2.400 milljarða íslenskra króna.
Þegar Trump tilkynnti áform sín um hækkun tolla á ökutæki í dag sakaði hann Kanadamenn um að hafa árum saman féflett Bandaríkin.
„Við þurfum ekki á Kanada að halda, þau þurfa á okkur að halda,“ sagði forsetinn.
Auk tolladeilnanna þurfa Bandaríkin og Kanada að semja um breytingar á fríverslunarsamningi Bandaríkjanna, Mexíkó og Kanada. Trump hefur þvertekið fyrir að endurnýja samninginn í núverandi mynd.
Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur boðað til blaðamannafundar. Fundurinn hefst innan skamms.