Trump skoðaði hugmynd að niðurrifi Kennedy Center
Ljósmynd AFP af Donald Trump um borð í Air Force One hefur vakið athygli. Þar sést forsetinn skoða mynd sem virðist sýna niðurrif Kennedy Center, eftir að dómari kom í veg fyrir að nafn Trumps yrði sett á bygginguna.
Ljósmynd AFP af Donald Trump þar sem hann virðist skoða mynd af niðurrifi Kennedy Center í Washington hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum. Trump hefur hótað að rífa hina þekktu menningarstofnun eftir að honum var meinað að nefna hana eftir sjálfum sér.
Á myndinni, sem Brendan Smialowski, ljósmyndari AFP, tók á Joint Base Andrews-herstöðinni seint á miðvikudag, sést Trump í gegnum glugga Air Force One halda á spjaldi þar sem sjá má rauða áletrunina: „Kennedy Center DEMOLIS...“
Gluggakarmur flugvélarinnar skyggir á það sem eftir er orðsins, en Trump hefur ítrekað rætt þann möguleika að rífa Kennedy Center.
Fyrir neðan textann er stór mynd af gulri vinnuvél að moka upp rústum.
Vinsældir Trumps mælast nú rétt yfir 30 prósentum, samhliða óánægju vegna stríðsins gegn Íran og hækkandi framfærslukostnaðar. Á sama tíma hefur forsetinn lagt mikla áherslu á að Kennedy Center verði nefnt eftir honum.
Hann hótaði að rífa bygginguna eftir að …