Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa landað stórkostlegum viðskiptasamningi á fundum með Xi Jinping, forseta Kína. Markmið Trumps var að semja við Kínverja um viðskipti með landbúnaðarvörur, flugvélar og tæknibúnað á borð við gervigreind.
Án þess að tíunda viðskiptin frekar sagði hann Xi hafa fallist á að kaupa 200 stórar Boeing-þotur, olíu og sojabaunir.
Trump sagði, að lokinni gönguferð þeirri Xis í morgun um rósagarða Forboðnu borgarinnar í hjarta Beijing, samninga þeirra Xis til hagsbóta fyrir bæði ríkin auk þess sem þeim hefði tekist að leysa margvíslegan ágreining sem öðrum hefði verið ómögulegt.
Ummæli Xis hafa verið lágstemmdari en hann sagði þó að þeir Trump hefðu styrkt tengsl ríkjanna og að heimsóknin hefði markað ákveðin tímamót. Hann hét því jafnframt að senda Trump fræ til að planta í rósagarðinum við Hvíta húsið.
Donald Trump segist jafnframt vera að missa þolinmæðina varðandi friðarsamkomulag við íranska ráðamenn. Ekkert hefur miðað í samkomulagsátt um nokkra hríð. Trump lét þessi orð falla við Sean Hannity, þáttastjórnanda á Fox-fréttastöðinni, og sagði að allar ógalnar manneskjur myndu komast að samkomulagi. „En þeir eru sennilega galnir,“ sagði Trump.
Trump sagðist einnig hafa fengið Xi til að samþykkja margt af því sem á honum hefur brunnið. Xi hefði boðið fram liðsinni við að knýja fram opnun á Hormússundi og staðfastlega heitið því að útvega Írönum ekki hernaðarbúnað.
Íranski utanríkisráðherrann Abbas Araghchi hefur sakað Sameinuðu arabísku furstadæmin um beina aðild að stríði Ísraela og Bandaríkjanna gegn Íran.
Utanríkisráðuneyti Kína birti í morgun yfirlýsingu um að það vildi sjá varanlegt vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans ásamt kröfu um að opnað yrði fyrir siglingar um Hormússund, heimsbyggðinni allri til hagsbóta.
Xi fór lítt í grafgötur með að Bandaríkin yrðu að stíga varlega til jarðar gagnvart Taívan, öll mistök gætu leitt af sér átök milli ríkjanna. Hann notaði Þúkýdídesar-gildruna svonefndu til að leggja áherslu á orð sín. Trump nefndi Taívan hvorki aðspurður á fimmtudag né í viðtalinu á Fox.
Utanríkisráðherrann Marco Rubio sagði í gærkvöld að afstaða Bandaríkjanna til Taívan væri óbreytt og Scott Bessent fjármálaráðherra segir forsetann munu tjá sig frekar um málið á næstu dögum. Ríkisstjórn Taívan þakkaði Bandaríkjunum í morgun fyrir tryggan og varanlegan stuðning.