Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og synir hans hafa hagnast um 2,3 milljarða bandaríkjadala með sölu og markaðssetningu rafmynta frá því Trump var endurkjörinn í embætti forseta í nóvember 2024.
Fjárfestar hafa hins vegar tapað álíka upphæð. Þetta leiðir greining fréttaveitunnar Reuters í ljós.
Þar er sjónum beint að fjórum verkefnum þeirra feðga sem öll fylgja sömu formúlu.
Trump-feðgar, einkum elstu synir hans tveir, hafa vakið áhuga á verkefnunum og laðað til sín fjárfesta með þeim afleiðingum að virði rafmyntarinnar hefur rokið upp í verði með miklum gróða fyrir þá og aðra sem voru fljótir á vagninn, sem hafa selt sig hratt út úr verkefnunum. Virðið hefur síðan hríðfallið eftir sölu og þá sitja þeir sem eftir eru uppi með verðlitla eign.
Falskar vonir og mikil verðlækkun
Eitt þessara verkefna er $TRUMP meme-myntin, sem var komið á fót eftir að Trump seldi fyrirtæki réttinn að nafninu sínu. Verðgildi myntarinnar náði hámarki í janúar 2025 en féll um 80% þegar fyrstu fjárfestar seldu sig úr verkefninu. Virðið hefur nú fallið um 97% frá því sem mest var.
Önnur verkefni eru félagið World Liberty Finance, sem er flaggskip rafmyntaviðskipta forsetans. Fjölskyldan hefur hagnast um 1,4 milljarða dala með sölu á svokölluðum stjórnpeningum (e. governance tokens) en yfirlýst markmið félagsins er að „skapa nýtt lýðræðislegt fjármálakerfi“ sem muni gagnast almenningi.
Þeir sem lögðu spariféð sitt undir lýsa verkefnunum sem „pump and dump scheme“ upp á ensku. Með því er átt við að eigandinn tali upp verð eignarinnar (pumpi það upp) en selji hana síðan með þeim afleiðingum að verðið hríðfellur.
Rannsókn Reuters er mjög viðamikil. Hún byggist meðal annars á greiningu á eins konar færsluyfirliti rafmynta, þúsundum blaðsíðna af dómskjölum, yfirlýsingum Trump-feðga og fyrirtækja þeirra og viðtölum við innanbúðarmenn úr rafmyntaheiminum.