Trump dregur í land – „Ég hef afstýrt árásunum og sprengjunum“

Trump dregur í land – „Ég hef afstýrt árásunum og sprengjunum“

Trump dregur í land – „Ég hef afstýrt árásunum og sprengjunum“

Donald Trump Bandaríkjaforseti er hættur við að ráðast á Íran af fullum þunga í kvöld eins og hann boðaði fyrir nokkrum klukkustundum. Í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Socal í dag sagði Trump að Bandaríkin hefðu í hyggju að taka yfir Kharg-eyju á næstunni, ásamt öðrum olíuinnviðum Írans. Kharg-eyja er meiriháttar olíuvinnslueyja undan ströndum Írans.

Trump dró síðar í land og sagðist efast um að Bandaríkjamenn treystu sér til að taka yfir eyjuna. Nú á sjötta tímanum tilkynnti hann aftur á sama miðli að árásunum væri aflýst vegna þess hve vel viðræður við Íran gengju.

Árásir Bandaríkjanna á Íran héldu áfram í nótt. Í þeim var meðal annars ráðist á þrjú flutningaskip á Óman-flóa með þeim afleiðingum að þrír indverskir sjómenn létu lífið.

Íranar hafa varað við því að vopnahléð milli þeirra og Bandaríkjanna hafi litla þýðingu í ljósi átakanna síðustu sólarhringa. Fulltrúar fjölda ríkja og ríkjabandalaga hafa varað við áframhaldandi stigmögnun og þrýst á ríkin að ná samkomulagi um endalok stríðsins sem allra fyrst.

Yfirvöld í Íran hóta kröftugum hefndaraðgerðum ef Bandaríkin fylgja eftir fyrirætlunum sínum um að taka yfir Kharg-eyju. Bandarísk stjórnvöld hafa sagt eyjuna vera „tengingu fyrir allt olíuframboð Írans“.

Ebrahi Azizi, yfirmaður þjóðaröryggis- og utanríkisstefnunefndar íranska þingsins, lýsti Donald Trump Bandaríkjaforseta sem „rugluðum og óstöðugum“ í samtali við íranska fjölmiðla í dag.

Azizi sagði Írana vera að fullu undirbúna fyrir mögulega atlögu Bandaríkjamanna að eyjunni. Hann sagði viðbúnaðarstig herafla Írans í hámarki á Kharg-eyju.

„Herafli okkar er reiðubúinn, með allan sinn styrk og alla sína getu,“ sagði Azizi.

Stjórnvöld á Indlandi funduðu í dag með Jason Meeks, varasendiherra Bandaríkjanna í Nýju Delí. Tilgangur fundarins var að mótmæla aðgerðum Bandaríkjanna sem leiddu til dauða þriggja indverskra sjómanna á olíuflutningaskipinu Settebello við strendur Óman í gær.

Mennirnir þrír, sem nú hafa verið nafngreindir, gegndu ólíkum hlutverkum á skipinu. Aditya Sharma var skipstjórnarnemi, Shivanand Chaurasia var vélsmiður og Patnala Suresh starfaði sem yfirverkfræðingur.

Skipamálaráðherra Indlands segir dauða sjómannanna þriggja vera tjón sem ómögulegt verður að laga. Hann kveðst vera afar hryggur yfir atvikinu sem sé „hörmulegt.“ Ráðherrann segir að lík mannanna þriggja verði send aftur til Indlands við fyrsta tækifæri.

Hezbollah-samtökin segjast hafa skotið niður dróna ísraelska hersins nærri Bekaa-dalnum í austurhluta Líbanon í dag.

Þetta staðfesta ríkisfjölmiðlar í Líbanon.

Fyrr í dag gerði Ísraelsher loftárás nærri sjúkrahúsi í borginni Týros í suðurhluta landsins.

Einn lést og 17 særðust þegar Ísraelsher gerði loftárás nærri sjúkrahúsi í Týros í dag.

Samkvæmt líbönskum fjölmiðlum hafnaði loftskeyti Ísraelshers á íbúðahúsnæði nálægt sjúkrahúsi í borginni Týros í suðurhluta Líbanons.

Tíu starfsmenn sjúkrahússins særðust, þar á meðal hjúkrunarfræðingar sem urðu fyrir glerbrotum og braki sprengingarinnar. Þá urðu einnig skemmdir á bráðamóttöku sjúkrahússins og sjúkraherbergjum.

Rúmlega 3.700 hafa látið lífið og 11.483 særst frá því árásir Ísraels á Líbanon færðust í aukana í byrjun mars, að því er fram kemur í gögnum heilbrigðisráðuneytis Líbanons.

Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur hingað til gengið erfiðlega að fá Írana til að semja um frið eða varanlegt vopnahlé, þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar um að samningar séu á næsta leiti.

Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa haft verulegar efnahagslegar afleiðingar í för með sér um allan heim.

Í Heimsglugga vikunnar er gerð ítarleg grein fyrir átökunum í Mið-Austurlöndum. Þar er meðal annars fjallað um aðgerðir Bandaríkjaforseta og hvaða árangri þær hafa skilað, stríðsrekstur stríðandi fylkinga, þátttöku Ísraels og hættur á langvinnri krísu.

Hægt er að hlusta á Heimsgluggann í spilara RÚV, neðst í fréttinni hér að neðan.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin ætla að ráðast á Íran af miklum krafti í kvöld.

„Einhvern tímann í ekki svo fjarlægri framtíð ætlum við að taka yfir Kharg-eyju ásamt öðrum olíuinnviðum og ná fullri stjórn á olíu- og gasmörkuðum þeirra, rétt eins og við gerðum við Venesúela,“ segir forsetinn á samfélagsmiðlinum Truth Social.

Í færslunni endurtók hann jafnframt fullyrðingar sínar um að Bandaríkin hafi með árásum sínum eyðilagt alla hernaðarinnviði Írana sem búi þar af leiðandi ekki lengur yfir neinni hernaðargetu.

Hvað er Kharg-eyja? Hvert er mikilvægi hennar?

Kharg-eyja er um þrjátíu kílómetra frá meginlandi Íran, norðarlega í Persaflóa og um 22 ferkílómetrar að stærð. Um 90% af hráolíuútflutningi Írans fer um eyjuna og er hún því afar mikilvæg fyrir efnahag landsins.

Bandaríski herinn hefur ítrekað gert árásir á eyjuna og hafa embættismenn lýst henni sem „tengingu fyrir allt olíuframboð Írans.“ Bryggjur hennar standa út í átt nærliggjandi hafsvæða og dýpt hafnarinnar rúmar risaolíuflutningaskip, sem gerir hana að mikilvægum stað fyrir olíudreifingu.

Ísraelskir hermenn hafa ráðist inn í bæina Ma'ariya og al-Arda í suðurhluta Sýrlands. Í frétt sýrlenskra fjölmiðla er haft eftir embættismanni að fulltrúar ísraelska hersins hafi í dag sett upp eftirlitsstöðvar í bæjunum og hindrað för íbúa.

Muwaffaq Mahmoud, yfirmaður bæjarráðs Abidin og Ma'ariya, segir í samtali við fjölmiðla að ísraelskir hermenn hafi ráðist inn í bæinn á vel búnum herbílum við sólarupprás og komið sér fyrir í grennd við vatnsból.

Sýrlensk yfirvöld hafa ítrekað óskað eftir því að ísraelsk yfirvöld yfirgefi yfirráðasvæði sitt með öllu.

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, ræddi þróun átakanna í Mið-Austurlöndum við Kaju Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, í gegnum fjarfundarbúnað í dag.

Á fundinum fór Araghchi afar hörðum orðum um árásir Bandaríkjamanna og sagði þær brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hann ítrekaði jafnframt að aðgerðir Bandaríkjamanna hefðu fellt vopnahléið úr gildi og að Bandaríkin bæru ábyrgð á afleiðingum þess.

Þá beindi utanríkisráðherrann spjótum að aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og sagði þögn hafa ríkt á meðal ríkjanna varðandi árásir Bandaríkjanna á Íran. Slíkt aðgerðarleysi á heimsvísu myndi einungis draga enn frekar úr öryggi og stöðugleika um allan heim.

Utanríkisráðuneyti Sádí-Arabíu hvetur yfirvöld í Íran og Bandaríkjunum til þess að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fyrirbyggja frekari stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum.

Í yfirlýsingu hvetja stjórnvöld í Sádí-Arabíu fulltrúa beggja ríkja til að snúa aftur að samningaborðinu og hefja uppbyggilegar viðræður. Mikilvægt sé að hlífa íbúum Mið-Austurlanda og víðar fyrir afleiðingum endurupptöku stríðsins og að endurheimta öryggi og stöðuleika til lengri tíma.

Hakan Fidan, utanríkisráðherra Tyrklands, tekur í sama streng. Hann segir árásum ríkjanna tveggja verða að linna sem allra fyrst. Þá séu Tyrkir í nánu sambandi við Washington, Teheran og sáttasemjara Pakistan og að mikilvægt sé að ljúka friðarviðræðum og ná samkomulagi.

Vaktin heldur áfram. Ég heiti Mist Grönvold og er hér með tekin við af Brynjólfi Þór.

Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, segir brýnt að Evrópusambandið sé tilbúið til að beita Íran nýjum viðskiptaþvingunum ef stríðinu í Mið-Austurlöndum ljúki ekki í bráð.

„Ef Teheran heldur áfram á rangri braut verður ESB að vera tilbúið að beita Íran auknum þrýstingi með markvissum aðgerðum,“ sagði Meloni þegar hún ávarpaði Evrópusambandið á fundi í dag.

Íranar segjast hafa lokað alfarið fyrir skipaumferð um Hormússund. Stofnun sem Íranar settu á fót til að stýra umferð og innheimta gjöld sagði í dag að sundinu hefði verið lokað vegna árása Bandaríkjahers við Persaflóa.

Stofnunin vísaði líka til yfirlýsinga íranska byltingarvarðarins í gær um að búið væri að loka Hormússundi fyrir umferð þar til annað verður ákveðið. Bandaríkjaher vísaði því þá á bug að Írönum hefði tekist að stöðva siglingar um sundið.

Þrír indverskir farmenn féllu þegar bandaríski flotinn skaut á flutningaskip sem þeir voru á úti fyrir ströndum Óman. Siglingaráðherra Indlands greindi frá þessu í dag.

Indverjar boðuðu sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund til að mótmæla árásinni. Þetta er annað skipið með indverska áhöfn sem verður fyrir árás Bandaríkjamanna í þessari viku. Á mánudag voru 24 skipverjar úr áhöfn skips fluttir frá borði vegna elds sem kviknaði í árás.

Jórdanski herinn segist hafa skotið niður 20 eldflaugar sem Íranar skutu í átt að stjórnstöð Bandaríkjahers í landinu.

Loftvarnakerfi Jórdaníu og konunglegi jórdanski flugherinn skutu niður 20 eldflaugar sem var skotið frá Íran í átt að Azraq-svæðinu í Zarqa-héraði, sagði herinn í yfirlýsingu. Svæðið er um 80 kílómetra austur af Amman, höfuðborg Jórdaníu.

Herinn sagði að þrátt fyrir að talsvert brak hefði fallið til jarðar hefði enginn særst.

Sendinefnd frá Katar fór til Írans til viðræðna við þarlenda ráðamenn. Fundurinn stóð fram á nótt en sendinefndin hélt aftur til síns heima í morgun.

Þetta hefur AFP-fréttastofan eftir ónefndum embættismanni. Hann sagði viðræðurnar hafa átt sér stað að höfðu samráði við Bandaríkjastjórn.

Kínversk stjórnvöld hvetja Bandaríkjamenn og Írana eindregið til að hætta öllum hernaðaraðgerðum.

Lin Jian, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, kom stefnu stjórnvalda á framfæri á blaðamannafundi.

„Kína hvetur eindregið til þess að viðeigandi aðilar hætti þegar í stað hernaðaraðgerðum, snúi sér að viðræðum og samningum, bregðist við tilraunum annarra ríkja til að miðla málum og nái saman um víðtækt og varanlegt vopnahlé eins fljótt og auðið er,“ sagði Lin Jian.

Íranska utanríkisráðuneytið fordæmdi í morgun árásir Bandaríkjahers á landið. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að árásirnar séu ólöglegar og glæpsamlegar og þar að auki sé þýðingarlaust að halda áfram viðræðum um frið á meðan Bandaríkjamenn haldi árásum sínum áfram.

Íranar vörpuðu allri sök á herðar Bandaríkjamanna.

Góðan dag og velkomin í fréttavakt um hernaðarátök við Persaflóa og víðar í Miðausturlöndum. Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og fylgi ykkur inn í daginn.

Bandaríkjamenn gerðu nýjar árásir á Íran í gærkvöld. Íranir svöruðu með árásum á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjunum. Í fréttinni að neðan má lesa um atburði gærkvöldsins og næturinnar. Nýjustu tíðindi birtast svo hér að ofan.

#afstýrt #dregur #hef #land #trump


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-06-11-trump-dregur-i-land-eg-hef-afstyrt-arasunum-og-sprengjunum-477753

📰 Aðrar fréttir

Gestir agndofa og með gæsahúð á fyrsta sýningardegi Beyeux-refilsins
📅 10.09.2026 👁️ 0
Gestir agndofa og með gæsahúð á fyrsta sýningardegi Beyeux-refilsins
„Það er mér sannur heiður að lýsa þessari sýningu á Bayeux-reflinum opna,“ sagði Nicholas Cullinan, safnstjóri breska þjóðminjasafnsins, áður en hann ...
Jake Lloyd hefur aldrei liðið betur
📅 10.09.2026 👁️ 0
Jake Lloyd hefur aldrei liðið betur
Fyrrverandi barnastjarnan Jake Lloyd, sem fór meðal annars með hlutverk ungs Anakin Skywalker í fyrsta kafla Stjörnustríðs, Ógnvaldarins, er nú kominn...
Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur
📅 10.09.2026 👁️ 0
Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri afhenti Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í Höfða í dag.Á sjöunda tug handrita bárust í samkeppni Reykjavíkurbor...
Lögreglan á Suðurnesjum viðurkennir mistök - Máttu ekki fyrirskipa eyðingu myndbands af því þegar kviknaði í manni
📅 10.09.2026 👁️ 0
Lögreglan á Suðurnesjum viðurkennir mistök - Máttu ekki fyrirskipa eyðingu myndbands af því þegar kviknaði í manni
Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur sent frá sér ákvörðun í máli sem hún tók upp að eigin frumkvæði. Varðar það alvarlegt atvik sem varð í gamla kirk...
Skil­orð fyrir að tvíkjálkabrjóta sam­býlis­konu sína - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Skil­orð fyrir að tvíkjálkabrjóta sam­býlis­konu sína - Vísir
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í dag, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi, með því að hafa í apríl ári...
Hvernig afgreiddi meirihlutinn 100 daga-listann?
📅 10.09.2026 👁️ 0
Hvernig afgreiddi meirihlutinn 100 daga-listann?
Hundrað dagar eru síðan Hildur Björnsdóttir varð borgarstjóri þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokksins tók til starfa. Me...
Esther Ranzen says she is too fragile to travel to Switzerland to end life
📅 10.09.2026 👁️ 0
Esther Ranzen says she is too fragile to travel to Switzerland to end life
The broadcaster and campaigner says she missed her chance to go before living with cancer became "unbearable".
Miklar hækkanir á olíu­mörkuðum í dag - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Miklar hækkanir á olíu­mörkuðum í dag - Vísir
Brent-hráolía, sem gjarnan er notuð sem heimsviðmiðið, hækkað um fjögur prósent um tíma í dag og fór upp í um 107 dali á tunnuna, samkvæmt frétt Wall ...
Töldu krikketlandslið vera flóttamenn og gerðu aðsúg að hóteli þeirra
📅 10.09.2026 👁️ 0
Töldu krikketlandslið vera flóttamenn og gerðu aðsúg að hóteli þeirra
Um 30 til 40 manna hópur safnaðist saman fyrir utan hótel í úthverfi Portsmouth á Englandi eftir að orðrómur fór á kreik um að þangað hefði komið rúta...
Pilot warned Amazon cargo plane going too fast before deadly crash, data shows
📅 10.09.2026 👁️ 0
Pilot warned Amazon cargo plane going too fast before deadly crash, data shows
One pilot told the other about the aircraft's "excessive speed" but received an uneven response even as alarms sounded.
Use all powers necessary on anti-migrant protests, home secretary tells police
📅 10.09.2026 👁️ 0
Use all powers necessary on anti-migrant protests, home secretary tells police
Two anti-migrant protests took place in Dover and Portsmouth last weekend.
Lifestyle modelling: A smarter way to plan your wealth, retirement and goals
📅 10.09.2026 👁️ 0
Lifestyle modelling: A smarter way to plan your wealth, retirement and goals
Lifestyle modelling, sometimes referred to as cashflow modelling or financial forecasting, is a financial planning tool that helps people understand h...
Sæði frá 81 sæðisgjafa selt í ólöglegu magni
📅 10.09.2026 👁️ 0
Sæði frá 81 sæðisgjafa selt í ólöglegu magni
Öryggisstofnun sjúklinga í Danmörku tilkynnti Evrópska sæðisbankann til lögreglunnar fyrir að nota sæði að minnsta kosti 81 sæðisgjafa í Danmörku í ól...
Tenerife’s plants could hold the secret to developing new medicines
📅 10.09.2026 👁️ 1
Tenerife’s plants could hold the secret to developing new medicines
The extraordinary plant life of Tenerife is being investigated for naturally occurring compounds that could one day contribute to the development of n...
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan heillum horfin – samansafn af leiðinlegum körlum
📅 10.09.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan heillum horfin – samansafn af leiðinlegum körlum
Kristrún Frostadóttir flutti í gærkvöldi sína þriðju stefnuræðu og gerði það með glæsibrag, talaði sem sannur forsætisráðherra og þjóðarleiðtogi. Hina...
Israel's Netanyahu to sue Haaretz over claim UAE warned him of 7 October attack
📅 10.09.2026 👁️ 1
Israel's Netanyahu to sue Haaretz over claim UAE warned him of 7 October attack
The paper said it stood by its reporting, after publishing extracts from a book where the claim appears.
Davíð braut reglur þegar hann minntist Steins Ár­manns - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 1
Davíð braut reglur þegar hann minntist Steins Ár­manns - Vísir
Útförin var gerð fyrir fullri Víðistaðakirkju í Hafnarfirði eftir hádegið í gær. Hún var með hefðbundnara sniði ef frá er talið að besti vinurinn var ...
Braut reglur þegar hann minntist Steins - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Braut reglur þegar hann minntist Steins - Vísir
Útförin var gerð fyrir fullri Víðistaðakirkju í Hafnarfirði eftir hádegið í gær. Hún var með hefðbundnara sniði ef frá er talið að besti vinurinn var ...
Fósturgreiningardeild flytur aftur á Hringbraut
📅 10.09.2026 👁️ 1
Fósturgreiningardeild flytur aftur á Hringbraut
Fósturgreiningardeild Landspítala flytur aftur í kvennadeildarhúsið við Hringbraut í næstu viku.Deildin flutti starfsemi sína tímabundið í hús Krabbam...
Yemen's Houthis reportedly seize strategic Red Sea port of Mokha
📅 10.09.2026 👁️ 1
Yemen's Houthis reportedly seize strategic Red Sea port of Mokha
Mokha's capture would bring the Iran-backed group closer to controlling the Bab al-Mandab Strait waterway, a key shipping route.
Grænland hafnar aðild að ESB þrátt fyrir milljarða fjárfestingar
📅 10.09.2026 👁️ 1
Grænland hafnar aðild að ESB þrátt fyrir milljarða fjárfestingar
Grænland hafnar aðild að ESB þrátt fyrir milljarða fjárfestingar Fréttin10. september 2026ErlentLeave a Comment Ursula von der Leyen, forseti framkvæm...
Steinn Ármann jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
📅 10.09.2026 👁️ 1
Steinn Ármann jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
Steinn Ármann Magnússon, leikari og grínisti með meiru, var jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag.Fjölmenni var við athöfnina en séra Da...
Bromley High Street stabbing: Four taken to hospital
📅 10.09.2026 👁️ 1
Bromley High Street stabbing: Four taken to hospital
Paramedics attended alongside London Air Ambulance crews at 14:19 BST on Thursday.
Bromley stabbing: One man in critical condition as seven arrested
📅 10.09.2026 👁️ 0
Bromley stabbing: One man in critical condition as seven arrested
Seven people are arrested and police say there is no wider threat to the public.
„Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabba­mein“ - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 1
„Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabba­mein“ - Vísir
Tónlistarkonan Una Torfa og Svandís Svavars, fyrrverandi ráðherra og stjórnmálakona, ræddu saman í fjórða þætti samtalsseríunnar Milli vina. Í þáttunu...
Oil, gas and borrowing costs surge as fears over Middle East escalate
📅 10.09.2026 👁️ 1
Oil, gas and borrowing costs surge as fears over Middle East escalate
The price of oil jumps to $105 a barrel amid signs the Iran war will not be resolved quickly.
Hanna Katrín treystir á afsögn Þorgerðar
📅 10.09.2026 👁️ 1
Hanna Katrín treystir á afsögn Þorgerðar
Hanna Katrín treystir á afsögn Þorgerðar Fréttin10. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Hanna Katrín Friðriksson,...
Stór­felldur niður­skurður fyrir­hugaður í vega­gerð - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Stór­felldur niður­skurður fyrir­hugaður í vega­gerð - Vísir
Að sögn Guðmundar Vals Guðmundssonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Vegagerðarinnar, var í fjármálaáætlun og samgönguáætlun gert ráð fyrir 34,8 milljö...
Skera rúma fjóra milljarða af vega­gerð - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Skera rúma fjóra milljarða af vega­gerð - Vísir
Að sögn Guðmundar Vals Guðmundssonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Vegagerðarinnar, var í fjármálaáætlun og samgönguáætlun gert ráð fyrir 34,8 milljö...
Baldur horfir á þetta viljandi „Djöfull skammast ég mín“
📅 10.09.2026 👁️ 1
Baldur horfir á þetta viljandi „Djöfull skammast ég mín“
Félagarnir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason halda úti hlaðvarpinu Menn eins og við þar sem þeir hakka í sig vandamál og verðlaunin sem miðaldra...
Hallinn tölu­verður en mun minni en búist var við - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 0
Hallinn tölu­verður en mun minni en búist var við - Vísir
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að hallinn skýrist af fjármagnsgjöldum, sem séu umfram áætlanir vegna aukinnar verðbólgu.  Skuldir lækka að raunv...
Haraldur opnar sig um örlagaríkan dag fyrir 18 árum: „Dagurinn sem besti vinur minn dó“
📅 10.09.2026 👁️ 1
Haraldur opnar sig um örlagaríkan dag fyrir 18 árum: „Dagurinn sem besti vinur minn dó“
Haraldur Már Haraldsson rifjar upp alvarlegt bílslys sem hann lenti í þegar hann var átján ára árið 2008. Í slysinu slasaðist Haraldur og besti vinur ...
Mótorhjólafólk vekur athygli á heilsu karlmanna
📅 10.09.2026 👁️ 1
Mótorhjólafólk vekur athygli á heilsu karlmanna
Laugardaginn 12. september fer fram í Reykjavík í níunda sinn, The Distinguished Gentleman’s Ride (Hefðarfólk á Hjólum) sem er hluti af alþjólegum við...
Búið að leggja fram beiðni um gjaldþrotaskipti Novis
📅 10.09.2026 👁️ 1
Búið að leggja fram beiðni um gjaldþrotaskipti Novis
Seðlabanki Slóvakíu, NBS, hefur lagt fram beiðni um gjaldþrotaskipti líftryggingafélagsins NOVIS fyrir slóvakískum dómstól. Þetta kemur fram á vefsíðu...
Kjós­ar­hrepp­ur ít­rek­ar and­stöðu við hænsna­bú
📅 10.09.2026 👁️ 1
Kjós­ar­hrepp­ur ít­rek­ar and­stöðu við hænsna­bú
Matfugl vill reisa allt að tíuþúsund fermetra hænsnabú á Tindstöðum í Eilífsdal í Kjós. Búið gæti hýst allt að 39.900 stofnfugla, og áætluð framleiðsl...
Fæddi barn utan við verslun Elko - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 1
Fæddi barn utan við verslun Elko - Vísir
„Við fengum tilkynningu um það að kona væri að fæða barn utandyra í Skeifunni og við sendum strax tvo bíla af stað. Síðan einni eða tveimur mínútum áð...
200 tonnes of wet wipes removed from sewers in south Tenerife
📅 10.09.2026 👁️ 1
200 tonnes of wet wipes removed from sewers in south Tenerife
An extraordinary 200 tonnes of wet wipes have been removed from the sewage system in south Tenerife so far this year, prompting a renewed warning to r...
Vilja aðgerðaáætlun um að útrýma minki
📅 10.09.2026 👁️ 1
Vilja aðgerðaáætlun um að útrýma minki
Sex þingmenn úr Miðflokki, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki vilja að mótuð verði stefna og aðgerðaáætlun sem miði að því að útrýma minki úr íslen...
Drone display recreates the Twin Towers over New York City
📅 10.09.2026 👁️ 0
Drone display recreates the Twin Towers over New York City
Organisers say each of the 2,977 drones in the display represents a victim of the 9/11 attacks.
Gulur september: Unga fólkið vill meiri samveru og lengri opnunartíma félagsmiðstöðva
📅 10.09.2026 👁️ 1
Gulur september: Unga fólkið vill meiri samveru og lengri opnunartíma félagsmiðstöðva
„Þau eru flest mjög ánægð með sína heimahaga en væru til í til dæmis lengri opnunartíma félagsmiðstöðva. Þau kalla mikið eftir því.“Þetta segir Kolbrú...
Aðdáendur hneykslaðir á Harry Styles vegna óhugnanlegrar vísunar til 11. september - „Hver ​​samþykkti þetta“
📅 10.09.2026 👁️ 1
Aðdáendur hneykslaðir á Harry Styles vegna óhugnanlegrar vísunar til 11. september - „Hver ​​samþykkti þetta“
Harry Styles er gagnrýndur fyrir listaverk á miða á tónleikaferðalagi hans Together, Together sem inniheldur óhugnanlega vísun í 11. september, aðeins...
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Kominn tími til að tengja
📅 10.09.2026 👁️ 0
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Kominn tími til að tengja
Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi árið 2022. Markmið laganna voru að ýmis kerfi sem þjóna börnum tali betur saman. Að börn...
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Þetta reddast!
📅 10.09.2026 👁️ 1
Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Þetta reddast!
Það hefur verið forvitnilegt að fylgjast með umræðunni í kjölfar þjóðaratkvæðisgreiðslunnar. Nei-menn fagna afgerandi niðurstöðu, en Já-menn eru með b...
Fyrrum fangi fær ekki flýtimeðferð – Segist hafa orðið fyrir einelti og pyntingum er hann afplánaði þungan dóm
📅 10.09.2026 👁️ 1
Fyrrum fangi fær ekki flýtimeðferð – Segist hafa orðið fyrir einelti og pyntingum er hann afplánaði þungan dóm
Fyrrum fangi telur sig hafa orðið fyrir einelti og ómannúðlegri meðferð í afplánun sinni. Hann hefur höfðað mál til að fá skaðabótaskyldu ríkisins við...
112 milljóna halli hjá Kópavogsbæ
📅 10.09.2026 👁️ 1
112 milljóna halli hjá Kópavogsbæ
Bæjarsjóður Kópavogs og fyrirtæki í eigu bæjarins voru rekin með minni halla en ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun. Hallinn nam 112 milljónum króna á...
Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 1
Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig - Vísir
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, mælti í morgun fyrir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Gert er ráð fyrir að fimm milljarða króna afgangu...
Hrókeringar hjá Framsókn
📅 10.09.2026 👁️ 1
Hrókeringar hjá Framsókn
Jóhann Friðrik Friðriksson og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, sem sátu á þingi fyrir Framsóknarflokkinn á síðasta kjörtímabili, eru orðin starfsmenn ...
Rafbyssu beitt við handtöku 19 ára pilts á Akureyri
📅 10.09.2026 👁️ 1
Rafbyssu beitt við handtöku 19 ára pilts á Akureyri
Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók 19 ára pilt í nótt og beitti rafbyssu við handtökuna. Yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar segir hann hafa ...
Af­koma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með - Vísir
📅 10.09.2026 👁️ 1
Af­koma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með - Vísir
Í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar segir að árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til júní 2026 hafi verið afgreiddur í borga...
Gruffalo Granny illustrator says rise of AI images 'worrying'
📅 10.09.2026 👁️ 0
Gruffalo Granny illustrator says rise of AI images 'worrying'
Axel Scheffler speaks to the BBC alongside author Dame Julia Donaldson, who reads an extract from their new book.