Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti í dag yfir bjartsýni á möguleika friðarsamnings við Íran, en hvorugur aðili hefur hleypt af skoti síðustu þrjá daga.
Hlé hefur verið á átökum landanna frá því á föstudag, eftir að Bandaríkin höfðu gert árásir á Íran í 13 nætur í röð. Árásirnar hófust að nýju þegar diplómatískar viðræður féllu um sjálfar sig vegna hafnbanns Írana í Hórmússundi.
Bandaríkjaforseti lýsti yfir von um að endurnýjuð diplómatísk samskipti gætu bundið enda á stríðið sem hófst í lok febrúar.
„Ég hef mikla þolinmæði... Við sjáum hvað verður,“ sagði Donald Trump um borð í forsetaflugvélinni Air Force One og sagði góðar líkur á að eitthvað gerist.
Íranar neita viðræðum en Trump fullyrðir hið gagnstæða
Stjórnvöld í Teheran hafa neitað því að viðræður eigi sér stað við Bandaríkin um að binda enda á átökin.
„Sáttasemjarar kunna að koma áfram skilaboðum frá bandarísku hliðinni til okkar varðandi þróun mála á svæðinu. En eins og er stöndum við ekki í neinum samningaviðræðum við Bandaríkin,“ sagði Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins.
Trump fullyrti hins vegar í ræðu í Michigan að samningaviðræður væru í gangi.
„Eins og er, eru þeir að tala við okkur um að gera samning.“
Bandaríkjaforseti sagði að ef nýjar viðræður mistækjust myndu fyrri aðgerðir taka aftur við og vísaði hann á bug áhyggjum af því að skotfærabirgðir Bandaríkjanna væru að klárast, næstum fimm mánuðum eftir að stríðið hófst.
„Við eigum mikið af skotfærum. Við eigum líka mikið af millistigsbúnaði, meira en við gætum nokkurn tímann notað hvað sem gerist.“