Lögfræðingur Elon Musk hefur hótað málaferlum gegn framleiðendum heimildamyndarinnar Musk vegna ærumeiðinga.
Lögfræðingurinn Alex Spiro segir í bréfi sem hann sendi til framleiðslufyrirtækisins Jigsaw Productions, sem framleiddi myndina, að leikstjóri myndarinnar Alex Gibney og framleiðslufyrirtækið hafi byggt myndina upp á fyrirframgefinni niðurstöðu.
Í bréfinu segir einnig að Gibney hafi ekki sannreynt fullyrðingar í myndinni og borið þær undir Musk eða hans nánasta fólk. Þess er jafnframt krafist að aðstandendur myndarinnar varðveiti öll gögn og efni tengd framleiðslu heimildamyndarinnar, svo sem upptökur, rannsóknargögn og öll samskipti, þar sem búast megi við málaferlum vegna myndarinnar.
Heimildamyndin Musk var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á þriðjudag. Myndin fékk góðar viðtökur á kvikmyndahátíðinni og mikið lófaklapp að lokinni frumsýningu.
Í myndinni, sem er fjögurra tíma löng, er starfsferli Musk frá því að hann var frumkvöðull í Sílikondalnum í upphafi aldarinnar gerð skil og þar til hann varð fyrsti billjónamæringur heims.
Þá er einnig fjallað um erfiða æsku hans og uppeldi í Suður-Afríku og hans persónulega líf og sambönd við barnsmæður hans sem hann á fjórtán börn með.
Musk hefur ekki farið dult með andúð sína á myndinni. Hann hefur undanfarna daga eytt töluverðu púðri í að rakka Gibney og myndina niður á X, sem er í hans eigu.