Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson segir að hann minnist þess aldrei í tíð sinni sem verjandi að það sé gert að aðalatriði hvort sakborningar í sakamáli séu öryrkjar, á atvinnuleysisbótum eða með framfærslustyrk frá sveitarfélagi. Telur hann að frétt Morgunblaðsins í dag um sakborningana þrjá í Höfðatorgsmálinu hafi að gera með að þeir séu útlendingar og múslimar.
„Mögulega hefur þetta eitthvað með það að gera að sakborningar eru bæði útlendingar og múslimar“