Karlmaður hefur verið dæmdur til 9 mánaða fangelsis, að hluta skilorðsbundið, vegna brota í nánu sambandi gagnvart fyrrum sambýliskonu. Á meðal þess sem hann sendi konunni var myndband sem gaf til kynna bölvun með kertum, hauskúpum og dulrænum táknum.Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag, 8. september en var birtur í dag.
Hélt fyrrum sambýliskonu í heljargreipum – Undarlegt myndband af bölvunarathöfn