Ástralska rokkstjarnan Rick Springfield viðurkennir að hafa orðið manni að bana fyrir áratugum síðan. Springfield var þá ungur maður að skemmta bandarískum dátum í Víetnam stríðinu.Tímaritið People greinir frá þessu.Springfield, sem er 77 ára gamall og þekktastur fyrir lag sitt Jessie´s Girl, var að ræða um daginn og veginn í nýju hlaðvarpi þegar atvikið bar á góma en það átti sér stað árið 1968 þegar hann var aðeins 19 ára. Springfield var þá í popphljómsveit sem kallaðist MPD Ltd sem var í ferðalagi um Suður Víetnam að skemmta bandarískum dátum í Víetnam stríðinu.
Rick Springfield viðurkennir að hafa drepið mann – „Vissi ekkert hvað ég var að gera“