Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir Donald Trump Bandaríkjaforseta eiga nokkrar leiðir út úr stríði Bandaríkjanna og Írans.
Rót deilunnar er erfitt að leysa. Erlingur segir að Trump sé fastur í ákveðinni gildru með þrjá kosti sem allir eru vondir.
Fyrsti kosturinn sé að auka hernaðaraðgerðir og jafnvel beita landhernaði. „Það mun hann heyra frá herforingjum sínum að er vond leið og ekki líklegt að ná góðri niðurstöðu pólitískt.“
Annar kosturinn sé að þrengja efnahagslega að Íran, meðal annars með hafnbanni og viðskiptaþvingunum, og vona að úthald þeirra verði minna en heimshagkerfisins. „Það er líka ólíklegt. Eiginlega vænsti kosturinn fyrir Trump er að lýsa yfir sigri og stíga í burtu en það er heldur ekki vandalaus niðurstaða.“
Erlingur ræddi ástandið í Mið-Austurlöndum í þættinum Fram undan á Rás 2 í morgun.
Olíuverð hækkar meira
Erlingur er búsettur í London þar sem hann segir að bæði sérfræðingar í endurtryggingabransanum og fólk sem verslar með olíu segi sér að olíuverð hafi hækkað minna en tilefni er til. „Teygjanleiki kerfisins er meiri en hann hefur verið áður.“
Olíutunnan kostar í kringum 100 dollara. „Margir sérfræðingar telja að það ætti að vera 150 eða meira miðað við stöðuna í útflutningi.“
Hann segir að jafnvel ef deilan leystist á morgun tæki samt langan tíma fyrir olíuverð að jafna sig. Ef hún harðnar verður vandinn dýpri. „Ég held að við séum ekki búin að sjá fyrir endann á þessum olíuverðsvanda þó að stríðinu myndi ljúka strax á morgun.“
Erlingur bendir á að Íran hafi hingað til verið hikandi við að beita lokunum á Hormússundi.
„Hvernig sem þessi áföll enda mun Íran í framtíðinni hafa ákveðið kverkatak á þessu sundi og geta beitt þvingunum þar ef í harðbakkann slær í framtíðinni. Það er alveg nýtt fyrir þá, þeir hafa ekki viljað fara þessa leið áður.“