Tón­listariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ - Vísir

Tón­listariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ - Vísir

Tón­listariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ - Vísir

Menningarvaktin á Vísi er hlaðvarp þar sem Símon Birgisson tekur fyrir það sem er efst á baugi í íslenskri menningu. Bubbi var gestur Símonar í nýjasta þætti hlaðvarpsins þar sem þeir ræddu um nýju plötuna, Ég er ekki sá sem þú heldur ég er sá sem ég er, aukna einstaklingshyggju og stöðuna í tónlistariðnaðinum í dag. 

„Þessi titill á plötunni er sérstakur og langur,“ sagði Símon í byrjun þáttarins.

Umslagið fyrir nýju plötuna.

„Titillinn vísar í að ég er marglaga. Og ég er ekki sá sem þú heldur ég sé. Heldur sá sem ég er. Þann mann getur fólk í mínum innsta hring nálgast. En svo er það karakterinn Bubbi, þessi Bubbi sem fólk hefur fengið innsýn í. Fjölmiðlafígura, tónlistarmaðurinn, hvatvísi maðurinn og svo fær fólk einhverja mynd af mér og hefur í sínu innra landslagi,“ sagði Bubbi um plötuna.

Titillinn sé líka vísun í Bob Dylan og tónlistina frá sjötta áratug síðustu aldar. „Þetta var ótrúlega frjór áratugur. Og það sem var skrýtið og það sem var á skjön var það sem var vinsælast. Það var drifkrafturinn og það varð algjör sköpunarsprengja,“ sagði Bubbi

„Í dag erum við með markaðsvæðingu á hamfaraskala. Stór hluti af tónlistariðnaðinum er klám og rúnk. Hérna heima er svo mikið af drasli að maður fyllist nánast lotningu yfir því hversu blindir menn geta verið á sjálfa sig af því þeir hafa auto-tune, tölvu eða gervigreind.“

Enginn tekið eftir því þó guð hefði mætt

Símon nefndi þá að mannkynið væri að ganga í gegnum merkilega tíma, sumir segðu rokkið vera að deyja út og hugmyndin um samsköpun væri að breytast. Allir vinsælustu tónlistarmenn heims væru sóló-listamenn og því spurði hann Bubba hvort við værum að sigla inn í öld einstaklingsins.

„Já og líka nándarleysis. Við erum að sigla inn í öld einangrunar. Ég var í fermingu um daginn og það voru allir í símanum. Guð hefði getað mætt í ferminguna og það hefði enginn tekið eftir því. Þetta var alveg magnað að sjá. Það voru allir, fullorðnir og aðrir í símanum. Allir,“ sagði Bubbi.

Bubbi MorthensVísir/Vilhelm

„Þetta eru pólskiptin,“ hefði hann hugsað með sér. Þess vegna væru undur og stórmerki að fólk færi enn á tónleika og í leikhús „þó maður hafi áhyggjur af því að megnið af áhorfendum eru eldri kynslóðin – risaeðlurnar.“

Símon spurði hvort það væri ástæðan fyrir því að Bubbi kysi að vinna með ungu tónlistarfólki. Á nýjustu plötunni syngja bæði Diljá Pétursdóttir og Friðrik Dór og á síðustu árum hefur hann gert lög með Auði, Kristmundi Axel og GDRN.

„Þetta er karma. Um leið og ég varpa ljósinu á einhvern beini ég líka ljósinu á sjálfan mig. Ég græði á því að sjá þeirra tónlistarveröld með þeirra augum. Og ég fæ að sjá sjálfan mig með þeirra augum. Það fær mig til að hugsa upp á nýtt. Að vinna með ungu fólki er ljós í herberginu. Ekki myrkur. Og það finnst mér mjög mikilvægt. Núna er ég með risahljómsveit með ungum tónlistarmönnum sem ég er að æfa með fyrir tónleikana í júní. Það er gríðarlega mikilvægt að hlusta á unga fólkið og heyra hvað þau eru að gera. Inn á milli eru alveg brilljant hlutir,“ sagði Bubbi.

Lengi að skófla sér í gegnum sársaukann

Símon sagði nokkrar klassískar „Bubba-línur“ á plötunni, sjálfur hefði hann staldrað við textann í laginu „Ég er tilbúinn“ en þar syngur hann: „Konur og víma og mistök hins liðna, hver grætur“. Bubbi segir lagið byggja á hans eigin lífi.

„Þetta lag kemur frá Otis Redding. Ég man þegar ég heyrði „Sitting on the Dock of the Bay“ í fyrsta skipti í Kjósinni. Það breytti einhverju inn í mér. Hef oft sótt í þetta minni. Og mig langaði að gera lag sem hefði „soul-kenndan“ þunga, „brass“ og mikið „grúv“ en hefði líka ekki bara einhver orð heldur einhverja sögu,“ sagði Bubbi.

„Þarna er ég auðvitað bara að syngja um líf mitt, mistökin mín, nándarleysið sem ég er búinn að burðast með alveg síðan ég var misnotaður. Og hversu lengi ég var að komast í gegnum þann stað að geta skóflað mér í gegnum sársaukann. Mikið af lögunum eru að spegla þennan veruleika,“ sagði hann um lagið sem væri hans uppáhald á plötunni.

Bubbi sagði það skemmtilegasta við tónlistina vera að leita að hinni einu sönnu melódíu.

Bubbi heldur afmælistónleika í höllinni 26. júní 2026. Vísir/Vilhelm

„Ég er að leita að einhverju sem mun aldrei rætast. Það er drifið mitt. Ég er endalaust að leita að bestu melódíunni. Mér finnst ég oft hafa fundið hana, hugsa að nú er ég með hana, en viku seinna fatta ég: „Nei, þetta er ekki nógu gott“,“ sagði hann.

„En uppáhald mitt er að búa til geggjaða melódíu sem allir geta sungið en svo fatta menn að textinn er um eitthvað allt annað en fegurð. Að splæsa saman einhverju dimmu í melódíu sem allir geta lært og sungið. „Rómeó og Júlía“ er bara um tvo sprautfíkla, og annar þeirra deyr, „Ástrós“ er um konu sem drepur manninn sinn og „Afgan“ um ást mína á kannabis.“

„Ef ég dey í fyrramálið þá er ég sáttur“

Bubbi fagnar sjötugsafmæli síðar á árinu og í tilefni af því hefur fimmtíu ára tónlistarferill hans verið krufinn í útvarpsþáttunum Bubbi og böndin á Rás 2 og svo stendur til að sýna sjónvarpsþætti á Rúv um bestu lög tónlistarmannsins. Símon nefndi að það væri tákn um Bubbi væri farinn að eldast og spurði hvort hann fyndi fyrir kalli tímans.

„Já, við komum og við förum. Ég var í námi hjá Guðríði Símonardóttur söngkonu og hún sagði alltaf: „Ef ég skyldi deyja.“ En það er ekki þannig. Það er þegar,“ sagði Bubbi.

Bubbi heldur sér í standi.

„Hins vegar getum við borið ábyrgð á því hvernig við lifum. Ég finn að ég er að eldast. En það gerist hægt. Ég er með ótrúlegt drif og líkamlega á pari við fertugan mann. Hins vegar, þá er ég á einhverju rófi, ég gæti trúað því. Ég veit ég er að verða sjötugur en ég trúi því ekki, finnst það ekki stemma. Mér finnst ég bara staddur í einhverju Matrix-dæmi - mér líður eins og ég sé fertugur og kannski er það gjöf.“

Bubbi sagðist hafa þurft að þurft að horfast í augu við eigin dauðleika þegar hann lenti í slæmum veikindum fyrir nokkrum árum.

„Það rifnaði slagæð í hálsinum, var tvísýnt og ég fór í aðgerð. Ég vissi alveg að það var bæði og, ég man að ég hugsaði: „Ef ég dey í fyrramálið þá er ég sáttur.“ Ég fann það, ég var algjörlega slakur,“ sagði hann.

„Dauðinn og lífið eru ástfangið par og þú getur ekki aðskilið þau. Og þessa nótt á spítalanum samdi ég textann: „Þessi hárfína lína sem enginn virðist sjá er gatan sem lífið og dauðinn ganga á.“ Fyrir mér er dauðinn jafnfagur og lífið og jafnstórkostlegur. Og ég held að ótti okkar við dauðann sé bara lífsforritið í okkur. Dauðinn er bara frábært fyrirbæri og fólk sem er hrætt við hann er ekki að lifa lífinu.“

Grófu stríðsöxina eftir skærur vetrarins

Bubbi hefur skoðanir á mörgu og blandar sér reglulega í þjóðfélagsumræðuna. Í vetur blandaði hann sér í umræðu um leikhús, tók til varna fyrir Baltasar Kormák vegna gagnrýni Símonar á Íbúð 10B og velti því fyrir sér hvort Símon skrifaði gagnrýni því hann floppaði sjálfur í leikhúsinu.

„Ég pundaði aðeins á þig,“ sagði Bubbi við Símon um yfirlýsingar sínar fyrr í vetur.

„Og sumir spurðu hvort mér væri alvara að bjóða þér í þáttinn. En mig langar aðeins að rifja upp að fyrir um fjórtán árum ákvað ég að setja tappann í flöskuna. Og við töluðum saman í síma og þú sagðir við mig: „Símon, þetta er besta ákvörðun sem þú munt taka á ævinni.“ Þetta samtal hefur setið í mér. Þessi orð hafa reynst sönn,“ sagði Símon. 

„Þess vegna sagði ég við þá sem vöruðu mig við: „Ekki hafa áhyggjur, Bubbi getur skotið á mig og ég til baka en þegar maður lifir í andanum – þá er maður yfir svona þras hafinn“,“ bætti Símon við.

Bubbi pundaði á Símon í vetur.Vísir/Vilhelm

„Eitt er að hafa skoðun á einhverju. Ég get haft skoðun á Hannesi Hólmsteini en hann er samt manneskja og marglaga. Ég hef aldrei skilið þetta að við þurfum að fara í ofsafengnar skotgrafir og hatast út í fólk vegna þess að það segir eitthvað sem okkur líkar ekki eða skrifar eitthvað sem hentar okkur ekki. Ég er á þeim stað að mér finnst allir hafa rétt á að segja það sem þeir vilja og ef menn fara yfir mörk þá þarftu að vera maður til að viðurkenna það,“ sagði Bubbi þá.

Hann segir það sama gilda um edrúmennskuna.

„Við berum ábyrgð á henni og ef einhver þarna úti er í vandræðum með neysluna og heldur að það sé betra að vera í neyslunni þá segi ég bara: „Nei, það besta sem þú getur gert er að stoppa og leita þér hjálpar og það bíður þín geggjuð framtíð.“ Ég hélt ég gæti aldrei stundað kynlíf aftur því ég vissi ekki hvernig það var að stunda kynlíf öðruvísi en dópaður, kókaður eða stónd og ég man að það var að halda mér frá því í töluverðan tíma að verða edrú,“ sagði Bubbi.

„Salurinn ræður hvað þú spilar lengi“

Eftir útgáfu Ég er ekki sá sem þú heldur ég er sá sem ég er stefnir Bubbi á að spila hana á næsta ári í heild sinni með hljómsveit. Framundan eru afmælistónleikar og svo eru fleira efni handan við hornið.

„Ég er með tvær aðrar plötur klára, eina með Auði – sem hefur legið milli þilja og aðra sem er í vinnslu núna. Þetta er það sem ég geri. Það sem keyrir mig áfram,“ sagði Bubbi. 

Bubbi heldur sjötugsafmælistónleikana 06.06.26 í Laugardalshöllinni í sumar.Vísir/Vilhelm

„Á meðan salurinn hlustar þá ert þú á þeirri öldu. Salurinn ræður hvað þú spilar lengi. Ef orkan er í lagi þá gef ég hljómsveitinni merki og við höldum áfram að spila.“

Bubbi segir þetta samtal áhorfenda og listamannsins það mikilvægasta. Nái maður að soga fólk inn þá gerist töfrar.

„Tíminn hverfur. Það eru nokkrir hlutir sem stoppa tímann: Samfarir, laxveiði, leiklist og tónlist,“ sagði Bubbi að lokum.

Hlusta má á nýjasta þátt Menningarvaktarinnar á Tal.is og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Auk þess að ræða við Bubba fékk Símon góða gesti til sín til að ræða stórmyndina Michael, Apex eftir Baltasar Kormák og umdeildan lista um bestu kvikmyndir aldarinnar.

#klám #mikið #rúnk #til #tónlistariðnaðurinn


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262886314d/

📰 Aðrar fréttir

ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 0
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 2
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 2
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 2
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 2
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 2
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 2
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 2
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 2
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 2
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 2
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 3
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 2
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 3
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 3
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
📅 08.10.2026 👁️ 2
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
Caroline Lucas tells the BBC Zack Polanski should have taken part in a vote on a motion declaring Zionism a form of racism.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 3
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 3
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 3
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 5
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær g...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum Skuld­sett heim­ili fá sam­tals 1,3 millj­arða króna í ein­skiptis­vaxta­bæt­ur verði...
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra...
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Í sama hverfi var tilkynnt um innbrot og einnig tilkynnt um...