Ungur maður sem spilaði tölvuleiki af kappi reyndist uppspretta tilkynningar til lögreglu um hávaða og mögulegt heimilisofbeldi í Mosfellsbæ.
Frá þessu er greint í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og einnig því að karlmaður hafi verið handtekinn í vesturhluta Reykjavíkur eftir að hafa ógnað leigubílstjóra, reynt að komast hjá greiðslu fargjalds og flúið undan lögreglumönnum sem kallaðir voru til.
Maðurinn reyndist vera undir áhrifum og var vistaður í fangaklefa að því er segir í dagbók lögreglunnar. Tveir meiddust lítillega í árekstri vespu og reiðhjóls og sama var upp á teningnum í tveggja bíla árekstri í Hafnarfirði.