Smáforrit sem sendir Úkraínumönnum tilkynningar um yfirvofandi árásir varð fyrir tölvuárás í gær. Úkraínski flugherinn greinir frá þessu.
Þrjár tilkynningar bárust með mínútu millibili en sú fyrsta barst klukkan 22.47 að staðartíma í gær, eða 20.47 að íslenskum tíma. Í tilkynningunum var fyrst lýst yfir geislunarógn, þá kjarnorkuógn og að lokum hættu á efnavopnaárás.
Að því búnu fengu allir notendur tilkynningar sem afturkölluðu fyrri skilaboð og lýst var yfir að engin hætta væri á ferðum. Flugherinn sendi einnig út tilkynningu á samfélagsmiðlinum Telegram um að forritið hefðisennilega orðið fyrir árás og hvatti fólk til að fylgjast með samfélagsmiðlum hersins og hins opinbera.
Önnur árás gerð á rússneskt forrit
Nokkrum klukkustundum síðar, eða eftir miðnætti að íslenskum tíma, tilkynnti almannavarnaráðuneyti Rússlands að tölvuárás hefði verið gerð á svipað forrit sem varar Rússa við drónaárásum og öðrum ógnum.
„Athugið! Smáforrit rússneska almannavarnaráðuneytisins hefur orðið fyrir umfangsmikilli tölvuárás sem gerir árásarmönnum kleift að senda almenningi falskar upplýsingar,“ skrifaði ráðuneytið á Telegram.
Ekki hefur komið fram hvort bein tengsl séu á milli árásanna.
Úkraínumönnum bárust þrenn skilaboð
Fyrsta tilkynningin barst klukkan 22.47 að staðartíma í gær:
Geislunarógn. Geislunarógn lýst yfir í Kyiv.
Næsta tilkynning barst einni mínútu síðar, en sú var skrifuð á rússnesku:
„Halló! Það verður kjarnorkuógn um alla Úkraínu. Ekki hafa áhyggjur, það er Oreshnik sem flýgur.“
Oreshnik eru rússneskar miðdrægar eldflaugar sem erfitt er að granda.
Þriðja og síðasta tilkynningin barst strax á næstu mínútu:
„Efnavopnaárás. Hætta er á efnavopnaárás í Kyiv. Ekki fara út úr húsi.“