Belgískir tollgæslumenn gerðu upptæk næstum nítján tonn af tóbaki og um það bil milljón sígarettur í þaulskipulagðri, ólöglegri vindlingaverksmiðju.
Engan var að finna í húsnæðinu en viðskiptaráðuneytið segir 42 rúm hafa verið í húsinu og því talið að sá fjöldi hafi starfað við framleiðsluna. Belgísk yfirvöld hafa lokað ellefu ólöglegum sígarettuverksmiðjum það sem af er ári og gert um 180 milljónir vindlinga upptækar.