Allir fimm farþegar Passat-bílsins voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Þeir voru fimm ungir menn á aldrinum 17 til 23 ára. Í nýrri tilkynningu frá lögreglunni í Cleveland í Jórvíkurskíri segir að grunur sé um að þeir hafi tengst skipulagðri glæpastarfsemi. Fjórir þeirra hafi komist í kast við lögin og hlotið dóm. Tveir lögreglumenn létust í árekstrinum.
„Lögreglan í Cleveland hefur hafið umfangsmikla rannsókn á þeim afbrotum sem áttu sér stað fyrir banaslysið sem kostaði sjö manns lífið, þar á meðal lögregluþjónana Matthew Blades og Tom Clough,“ segir í tilkynningu.
Þrjár konur og níu karlar, á aldrinum 19 til 61 árs, hafi verið handtekin í tengslum við víðtæka rannsókn lögreglunnar í Cleveland. Þau séu grunuð meðal annars um vopnalagabrot og þátttöku í skipulagðri glæpastarfsemi.
Lögregla segir að sér hafi borist tilkynningar um glæfralegan akstur tveggja bíla á svæðinu fyrir slysið. Báðir hafi verið með falsaðar bílnúmeraplötur. Annar þeirra hafi verið Passat-bíllinn sem skall saman við lögreglubílinn.
Aðrir lögreglumenn hafi veitt Passat-bílnum eftirför þangað til um tíu sekúndum fyrir áreksturinn, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Lögreglumennirnir sem lentu í árekstrinum hafi verið að sinna öðrum verkefnum.