Forsetinn er dyggur áhorfandi bandarísku íhaldsstöðvarinnar Fox News og er greinilegt að hann fylgdist náið með umfjöllun þeirra um það leyti sem kjörstöðum var lokað.
„Er að horfa á forniðurstöðurnar kosninganna á FoxNews, en ég þoli ekki rödd Jessicu Tarlov — HEIMSK EINS OG STEINN, en það er röddin sem fer í mig. Verð að fara eitthvert annað þangað til þessi LÚSER er farin úr loftinu — ég kem aftur síðar!“ skrifaði Trump á Truth Social klukkan 22:25. Tarlov starfar fyrir Demókrataflokkinn en er meðal reglulegra þáttastjórnenda í þættinum The Five á Fox News.
„Skoðanakönnun FoxNews, alltaf sú versta, spyr svo móðgandi spurninga. Hver einasta spurning er rógsherferð og hvert einasta svar er „KJAFTÆÐI!“ Þetta hefur viðgengist árum saman,“ skrifaði Trump síðar.
Þá sagði hann áhorfstölur sjónvarpsstöðvarinnar hafa hrunið vegna þess að hún eyddi of miklum tíma í umfjöllun um Demókrata sem væru með ranghugmyndir og Trump á heilanum.
„Engin furða að áhorfstölur FoxNews séu að hrynja, og þær eiga eftir að fara mun neðar. Þær hafa hrapað, ekki mín vegna, heldur vegna þess að þeir eru Á MÓTI mér! Þetta gerðist einu sinni áður og Fox hrundi næstum. Það er að gerast aftur!“
Á einhverjum tímapunkti virtist Trump vera að senda þáttastjórnendum The Five skilaboð á meðan þeir voru í beinni útsendingu.
Hann hringdi síðar inn í þáttinn og mátti þá heyra aðeins mildari tón í forsetanum. „Þetta kom mér svolítið á óvart. Ég hélt að þeim myndi ganga betur.“
Margir þáttastjórnendur Fox News hafa löngum verið yfirlýstir stuðningsmenn og jafnvel nánir bandamenn. Þá hefur sjónvarpsfólk þaðan ratað í ríkisstjórn hans.
Blaðamaður The New York Times segir það hafa komið mörgum á óvart að forsetinn og fylgdarlið hans hafi ekki haft uppi ásakanir um kosningasvindl eftir að niðurstöður urðu ljósar. Þar geti mögulega haft áhrif hversu víðtækur og umfangsmikill sigur Demókrata reyndist vera.
Ekki honum að kenna
Í viðtali við The New York Times sagðist Trump „algjörlega reiðubúinn“ til þess að viðurkenna niðurstöður þingkosninganna og tilbúinn í að vinna með Demókrötum í þinginu. Þá sagði hann ástæðuna fyrir tapinu vera að hann hafi ekki sjálfur verið á kjörseðlinum.
Hann bætti við að sú ákvörðun hans að hefja stríð í Íran hafi verið „mjög gáfuleg“ en stríðið hefur notið mikilla óvinsælda meðal bandarísks almennings þvert á flokka. Vinsældir Trumps hafa sömuleiðis mælst litlar í könnunum um langt skeið og farið þverrandi.
Fréttin hefur verið uppfærð.